Sýning og sigurhátíð hjá Toyota á laugardag:
Yaris – Bíll ársins 2021
Laugardaginn 24. apríl verður sýning og sigurhátíð hjá öllum viðurkenndum söluaðilum Toyota þar sem því verður fagnað að Yaris var nýlega útnefndur bíll ársins í Evrópu 2021.
Á sýningunni gefst gott tækifæri að skoða og reynsluaka þessum skemmtilega bíl sem Íslendingar hafa alltaf kunnað að meta frá því hann kom fyrst fram á sjónarsviði árið 1999.
Síðan þá hafa meira en 14.000 Yarisar selst á Íslandi enda er Yaris bíll sem höfðar til allra aldurshópa og hentar til margvíslegra nota.
Yaris er með nýja spræka bensínvél og 4. kynslóð Hybridkerfs Toyota sem tryggir lítinn útblástur og litla bensíneyðslu. Hybridkerfið var nefnt sérstaklega i úrskurði dómnefndar um bíl ársins vegna lítils útblásturs og þæginda í akstri.
Nýr Yaris er fáanlegur í nokkrum útfærslum og auðvelt er að sníða bílinn að þörfum hvers og eins. Verð á Yaris með 1.0l bensínvél er frá 3.320.000 kr. Yaris með 1.5l bensínvél og Yaris Hybrid kosta frá 3.850.000 kr.
Gjafabréf frá Icelandair að verðmæti 100.000 kr. fylgir hverjum Yaris Hybrid sem selst á sýningunni á laugardag.
Sýning og sigurhátíð verður hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ á Akureyri og Selfossi á laugardag kl. 10 – 16 og þá má einnig reynsluaka þessum sívinsæla bíl.
Umræður um þessa grein