VW ID.4 er bíll ársins
Nú liggur fyrir að það var Volkswagen ID.4 sem var valinn „Bíll ársins 2021 á Íslandi”. Alls voru 44 bílar gjaldgengir í valinu að þessu sinni, en aðeins leið lengra á milli valsins vegna faraldurs Covid-19.
Valið á Bíl ársins var kunngert í dag, mánudaginn 7. júní við athöfn í sal Blaðamannafélags Íslands í Síðumúla 23, að viðstöddum fulltrúum bílaumboðanna og öðrum gestum kl. 17:30.
Þar voru þeir 12 bílar sem komust í úrslit verðlaunaðir og sá sem flest fékk stigin hlaut Stálstýrið, sem Bandalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) afhendir nú í tuttugasta sinn, og þar með titilinn „Bíll ársins 2021 á Íslandi”.
Lokaprófun bílanna 12 sem kepptu í úrslitunum fór fram miðvikudaginn 26. maí. Það var hópur bílablaðamanna frá miðlum eins og bilablogg.is, Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, FÍB blaðinu, Viðskiptablaðinu og visir.is. sem tók þátt í þessu lokaprófi og fóru með bílana 12 upp í Hvalfjörð og þar skiptist hópurinn á að prófa bílana.
Að loknum þessum „lokareynsluakstri“ voru bílunum gefin stig, þar sem hverjum bíl er gefin einkunn frá 0 til 10 í tólf mismunandi þáttum, en hámarksfjöldi stiga sem hver bíll getur fengið er 120 stig.
Niðurstaðan í prófunum varð þessi:
Flokkur minni fólksbíla
Á myndinni talið frá vinstri: Honda E 716 stig, Toyota Yaris 719 stig, Opel Corsa E 768 stig.
Flokkur stærri fólksbíla
Á myndinni talið frá vinstri: VW ID-3 sem hlaut 780 stig, Peugeot e-2008 sem hlaut 744 stig, Opel Mokka 776 stig.
Flokkur minni jepplinga/jeppa
Á myndinni talið frá vinstri: VW ID-4 sem hlaut 838 stig, MG EHS PHEV 761 stig, Skoda Enyaq EV 787 stig.
Flokkur stærri jepplinga/jeppa
Á myndinni talið frá vinstri: Kia Sorento 761 stig, Ford Explorer 733 stig, LR Defender 776 stig.
VW ID.4 sigraði með nokkrum yfirburðum
Þegar við skoðum niðurstöðurnar úr valinu að þessu sinni sést að Volkswagen ID.4 sigraði með nokkrum yfirburðum, hlaut 838 stig og er því vel að titlinum kominn, en sá sem kom honum næstur var Skoda Enyaq sem hlaut 787 stig.
Heiðursfélagi
Sigurður Hreiðar var sæmdur nafnbótinni Heiðursfélagi BÍBB.
Umræður um þessa grein