VW gerir ráð fyrir nýjum meðalstórum rafbíl í framboði sínu
Samkvæmt frétt Christiaan Hetzner á Automotive News Europe mun meðalstór rafbíll Volkswagen verað með litla loftmótsstöðu, hagkvæma akstursvegalengd og stuttan hleðslutíma.
Bíllinn verður byggður á ID Vizzion hugmyndabílnum sem kynntur var á bílasýningunni í Genf 2018. Búist er við að bíllinn komi í sölu árið 2023.
Gerðin er enn í þróun en verkfræðingar VW sögðu Automotive News Europe að þeir stefndu að mjög hagkvæmum bíl sem gæti ekið allt að 700 km á einni hleðslu samkvæmt WLTP prófunarstaðli fyrir Evrópu.
Bíllinn gæti verið kallaður ID6 þó að VW sé nú að endurskoða nafnakerfi sitt fyrir fjölskyldu rafknúinna ökutækja og íhugar að skapa samkvæmi í nálgun á öllum helstu alþjóðamörkuðum.
Þegar bíllinn kemur í framleiðslu mun hann bjóða upp á sama innra rými og Phaeton lúxusbifreiðin frá VW sem nú er hætt.
Úrbætur á hverju lykilsvæði, allt frá léttu burðarvirki til stærri rafhlöðu sem nú er búist við að verði 84 kílówattstundir, munu hjálpa til við að auka aksturssvið bílsins.
Stjórnendur VW segja að 700 km sviðið muni þýða að ótti neytenda um að ekki sé hægt að keyra fólksbifreiðar eins langt og bensín eða dísilbíla muni ekki lengur vera vandamál.
Loftaflfræðilegur fókus
Reiknað er með að langdrægið komi frá mikilli framför hvað varðar loftmóttstöðu með mjög lágan vindstuðul. Verkfræðingar hafa gefið bílnum kóðanafnið Aero-B til að endurspegla áherslu sína á loftaflfræðina.
Samkvæmt VW hönnuðum er loftmótstaða mesta á um 50 km/klst hraða og þar fyrir ofan.
Porsche VW Group náði að lækka vindstuðul Taycan rafknúnu fólksbifreiðarinnar niður í 0,22 cd, sem er meðal þess besta og mögulegasta á framleiðslubílnum. Viðnámsstuðullinn er þó aðeins einn þáttur: annar mikilvægur þáttur er að lágmarka þversniðssvæði að framan. Samsetning þessara tveggja ákvarðar vindmótsstöðu ökutækisins.
Þegar framleiðsluútgáfa af Aero-B verður frumsýnd ætti hún að geta endurhlaðið rafhlöðuna með hámarksafköstum sem nemur 200 kílóvöttum, sem þýðir að 10 mínútur í hraðhleðslustöð gætu bætt 230 km til viðbótar við akstursvegalengdina.
Núverandi áætlanir VW gera ráð fyrir að hröðun bílsins frá í 0 til 100 km/klst sé 5,6 sekúndur fyrir fjórhjóladrifsútgáfuna og aðeins minni eða 8,5 sekúndur fyrir afturhjóladrifsútgáfuna.
Afköst rafknúins drifs gæti náð 271 hestafli fyrir afturhjóladrifnu útgáfuna og allt að 402 hestöfl fyrir aldrifsbílinn bílinn, samkvæmt upplýsingum frá háttsettum verkfræðingi innan VW.
Þessar mælingar myndu setja bílinn skör neðar en Model S, Polestar 2 og Mercedes EQS sem kemur á næsta ári, og nær líklega svipaðri stærð BMW i4 sem verður væntanlega kynntur árið 2021.
Framleiðslugerð Aero-B mun að lokum koma í stað Passat með hefðbundinn brunavél og sportlegri Arteon.
VW fjárfestir fyrir um 1 milljarð evra í verksmiðju sinni í Emden í Þýskalandi til að smíða fólksbifreiðina ásamt stationútgáfunni, sem byggður er á hugmyndabílnum ID Space Vizzion.
Framleiðsla á Passat, sem nú er smíðaður í Emden, verður flutt til Bratislava í Slóvakíu árið 2023 þar sem bíllinn verður smíðaður með systurgerð sínu, Skoda Superb. VW mun aðeins halda Passat stationgerðinni á Evrópumarkaði og hætta með fólksbílsútgáfuna, að því er heimildir hafa sagt ANE.
VW er sem stendur að afgreiða ID3 rafknúninn hlaðbak í Evrópu. Bíllinn, sem er í Golfstærð, er sá fyrsti af nýrri kynslóð bifreiðaframleiðandans af bílum sem aðeins nota rafhlöður og sem byggjast á MEB grunninum. Önnur gerð, ID4 crossover, mun fara í sölu á næsta ári.
VW sagði þann 14. desember að það myndi smíða flaggskip rafbíla fyrir VW vörumerkið í verksmiðju sinni í Wolfsburg. Fyrirtækið bauð ekki upp á neinar upplýsingar um bílinn en það verður önnur gerð en framleiðslugerð Aero-B.
(Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein