- VW segir verð nýrrar grunngerðar rafbíls byrja í 20.000 evrum
Volkswagen kynnti nýja grunngerð rafbíls á bílasýningunni í München. Framleiðandinn segir að ID Life hugmyndabíllinn í crossover-stíl gefi góða mynd af því sem vænta má en þessi litli rafbíll, byggður á MEB grunni VW Group, á að fara í sölu árið 2025.
Framleiðsluútgáfa bílsins mun nota aðlagaða útgáfu af MEB grunninum, með hjólhafið stytt í 2500 mm úr 2770 mm eins og er í dag á ID3-bílnum, sagði VW.
ID Life „fangar lykilhæfileika okkar í rafvæðingu, samhæfingu hugbúnaðar sem og gæðum,“ sagði Ralf Brandstaetter, forstjóri VW, við kynningu bílsins á mánudag. Framleiðsluútgáfan mun kosta 20.000 til 25.000 evrur (3 til 3,7 milljónir króna), sagði Brandstaetter.
Aðlögun (scaling) MEB grunnsins, til að bera litla bíla, dregur verulega úr framleiðslukostnaði ID Life og fyrir vikið mun bíllinn „komast inn í 20.000 evra verðlagsbilið“, sagði Brandstaetter.
Styttri gerð á MEB grunninum myndi einnig bjóða upp á litlar rafmagnsgerðir fyrir bæði Skoda og Seat Cupra hágæða vörumerkið, sagði forstjóri VW og bætti við að fjölskylda „litlu bílanna” yrði „líklegast“ smíðuð á Spáni.
„Við ætlum líka að staðsetja rafhlöðuframleiðslu þar,“ sagði Brandstaetter.
Væntanlega nefndur ID1
Búist er við því að VW kalli bílinn ID1 og hlaðbaksútgáfan, sem áætlað er að komi síðla árs 2027, fengi þá nafnið ID2.
Gert er ráð fyrir að útgáfa Skoda af bílnum verði kölluð Elroq.
Sagt er að ID Life sé búinn 57 kílówattstunda rafhlöðu til að gefa bílnum um 400 km drægni.
Rafmótorinn hefur verið færður í framenda bílsins og er hann því fyrsta framhjóladrifna MEB gerðin.
231 hestafls rafmagnsmótorinn gefur bílnum 6,9 sekúndna hröðunartíma frá 0 upp í 100 kílómetra hraða, greindi VW frá.
VW sagði að hönnun bílsins væri einföld og hagkvæm; einfaldleikinn mótaði stefnuna. Til að mynda verður ekki upplýsingaskjár í ID Life heldur birtast upplýsingar á snjallsíma ökumanns eða spjaldtölvu sem festist með segli við mælaborðið. Einnig verður hægt að varpa upplýsingunum upp á framrúðuna.
Mikið af endurunnum efnum
Áhersla er lögð á endurnýtingu og endurvinnslu í framtíðarstefnu VW. Það efni sem notað er í innanrými ID Life er að stórum hluta endurunnið.
Loftklæðningin á færanlegu þakinu er til dæmis úr endurunnum plastflöskum og fest með rennilásum.
Sætisáklæðin eru gerð úr endurunnum plastflöskum og gömlum stuttermabolum sem fá þar nýtt hlutverk.
Bíllinn verður vissulega búinn nýjasta upplýsinga- og afþreyingarkerfi VW með tilheyrandi tækniundrum sem nánar verða krufin síðar.
(Byggt á Reuters – Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein