- Nú er vorið á næsta leiti og af því tilefni býður Hekla til Vorsýningar á Laugavegi 174, laugardaginn 20. apríl.
Á sýningunni verða vegleg tilboð af úrvali bíla og aukahluta sem henta vel til ferðalaga sumarsins.
Volkswagen ID.5 GTX og Volkswagen ID.4 GTX.
Til sýnis verður meðal annars ID. lína Volkswagen en bílarnir í línunni eru nú orðnir fimm talsins, allt 100% rafbílar sem reynst hafa afar vel. Fjórhjóladrifnu sportjepparnir ID.4 og ID.5 GTX verða á sérstöku vortilboði.
Þá verða til sýnis bílar frá Skoda, bæði rafmagns og dísel en hin sívinsæla og endingargóða Octavia er nú loksins fáanleg á ný og verður hún á sérstöku tilboðsverði ásamt Skoda Kamiq og Skoda Enyaq.
Skoda Octavia Combi 4×4 og Skoda Enyaq Coupe RS.
Sýningarsalur Audi verður einnig fullur af spennandi bílum en Audi Q8 e-tron sem oft hefur verið nefndur “leiðtogabíllinn” verður til sýnis, auk Audi GT og Audi Q4 sem aftur er væntanlegur á næstu dögum.
Vorsýning Heklu stendur frá kl. 12-16 á laugardag, en Bílakjarninn umboðsaðili Heklu í Reykjanesbæ mun einnig vera með sýningu sama dag.
Umræður um þessa grein