- Uppfærslan kemur þegar samkeppni meðalstærðar rafmagnssportjeppa eykst
- Uppfærði VW ID.5 coupe-sportjeppinn fær stærri snertiskjá, aukið drægni og meira afl
Volkswagen ID.5 hefur fengið nokkrar umtalsverðar uppfærslur í þeirri von að gera rafknúna coupe-jeppann samkeppnishæfari gegn álíka sléttum fjölskyldubílum eins og Nissan Ariya, Tesla Model Y og Ford Mustang Mach-E.
Einnig er verið að minnka ID.5 línuna fyrir árið 2024, þar á meðal að fjarlægja 172 hestafla grunngerðina, meðal annarra. Þegar pöntunarbækur fyrir uppfærða ID.5 opna á næstu vikum, mun kaupendum bjóðast aðeins tvær gerðir: afturdrifiinn ID.5 Pro í Style-búnaðargerð og fjórhjóladrifinn ID.5 GTX á markaði á Englandi, samkvæmt frétt Auto Express, en ekki er enn vitað um hvernig þessu verður háttað á öðrum mörkuðum.
Nýi ID.5 Pro er með einum rafmótor sem skilar 282 hö og 535 Nm togi – 110 hö meira en ID.5 Pro, og 82 hö aukning frá ID.5 Pro Performance sem nú hefur verið hætt, auk 75 prósenta meira togs en báðir voru með.
Enginn opinber 0-100 lm/klst tími hefur verið opinberaður fyrir nýja ID.5 Pro, en Auto Express gerir ráð fyrir að hann verði töluvert fljótari en forveri hans sem gæti tekið sama sprett á 8,4 sekúndum.
Fjórhjóladrifiinn ID.5 GTX er enn til staðar og fær 40 hestöfl til viðbótar, sem eykur samanlagt afl af tvöföldum mótor uppsetningu hans úr 295 hestöflum í 334 hestöfl.
Með þesu auk afli hefur VW tekist að skera 0-100 km/klst tíma fyrir ID.5 GTX niður í 5,4 sekúndur. 180 km/klst hámarkshraðinn er sá sami, þó að ID.5 Pro hafi verið aukinn til að samsvara við það.
VW segir einnig sé minni orkunotkun til staðar og hafa búið ID.5 með nýrri rafhlöðu sem hefur gert kleift að auka drægni frá 526 km upp í 545 km fyrir einsmótor útgáfuna.
Að auki hafa ID.5 gerðir með drifi að aftan nú hámarkshleðsluhraða upp á 135 kW og uppfærði ID.5 GTX nær 175 kW.
Eigendur munu einnig geta forkælt rafhlöðuna á leiðinni að hleðslustað, svo hún verður tilbúin fyrir hraða áfyllingu við komu.
Volkswagen hefur ekki beint allri athygli sinni að drifrásinni. Að innan er ID.5 nú með stærri 12,9 tommu snertiskjá sem keyrir nýjustu útgáfuna af upplýsinga- og afþreyingarhugbúnaði vörumerkisins sem er ætlað að vera auðveldara í notkun og með færri galla.
Snertinæm stjórntæki fyrir hitastig og hljóðstyrk fyrir neðan miðskjáinn eru nú líka upplýstir og stafræni ökumannsskjárinn og valfrjáls aukinn sjónlínuskjár hefur verið endurbættur.
ID.5 er ekki eini meðlimurinn í Volkswagen rafbílalínunni sem hefur verið uppfærður; ID.4 fjölskyldusportjeppinn hefur fengið sömu uppfærslur og snjöll systurbíll hans og andlitslyfti ID.3 hlaðbakurinn lenti fyrr á þessu ári (eins og sjá má í annarri frétt), þó að hann muni fá sama 12,9 tommu skjá og ID.5 einhvern tímann árið 2024.
(frétt á vef Auto Express)
Umræður um þessa grein