- Líf og fjör í Heklu á Vetrarhátíð um síðustu helgi
Viðburðurinn vakti mikla athygli bílaáhugafólks sem fjölmennti til að kynna sér nýjustu bílana frá þessum tveimur framleiðendum.
Mitsubishi Outlander PHEV 2025
Nýr Outlander er væntanlegur í apríl.
Nýjasti Outlander PHEV er hannaður sérstaklega fyrir Evrópumarkað og er væntanlegur í ársbyrjun 2025. Bíllinn var Evrópufrumsýndur í Madrid í október 2024. Þessi nýja útgáfa byggir á vinsældum fyrri kynslóða og býður upp á endurbætta aksturseiginleika, aukna sparneytni og nýjustu tækni.
Outlander PHEV hefur verið einn mest seldi tengiltvinnbíll á Íslandi um árabil og er því mikill spenningur fyrir þessari nýju útgáfu.
Það nýjasta frá Skoda
Skoda Kamiq hefur fengið andlitslyftingu fyrir árið 2025 með uppfærðum útlitsbreytingum og auknum búnaði.
Von er á nýjum rafbíl frá Skoda í byrjun árs hjá Heklu en sá heitir Skoda Elroq. Einnig sýndi Hekla, Skoda Kodiaq í sportútfærslu.
Gestir á vetrarhátíð fengu tækifæri til að skoða bílana í návígi, spyrja sérfræðinga spurninga og bóka reynsluakstur. Hekla bílaumboð hefur ávallt lagt áherslu á að kynna nýjustu bílana með glæsibrag, og þessi vetrarsýning var engin undantekning.
Þeir sem misstu af helginni hjá Heklu geta ennþá kynnt sér nýju bílana með því að heimsækja sýningarsal Heklu við Laugaveg eða skoða nánari upplýsingar á heimasíðu þeirra.
Umræður um þessa grein