Toyota afhjúpar GR Corolla rallýbíl í Bandaríkjunum
LONG BEACH, Kaliforníu – Toyota er að snúa aftur inn á „heita“ hlaðbaksmarkaðinn í Bandaríkjunum með nýrri gerð fjórhjóladrifins Corolla sem knúin er af kraftmikilli þriggja strokka vél. Þessi gerð var þróuð af Gazoo Racing teyminu.
Næsta kynslóð rallýbíls Toyota, sem var opinberuð í vikunni, er með beinskiptingu sem og aflrás sem gerir ökumanni kleift að velja um afldreifingu að framan og aftan — 60-40, 50-50 eða 70-30 — til að henta sem best akstursskilyrðum.
En 1,6 lítra, forþjöppuð vél er aðal aðdráttaraflið.
Hún er tengd við sex gíra beinskiptingu og skilar allt að 300 hestöflum og 370 Nm – sem gefur honum 185 hestöfl á hvern lítra slagrýmis.
Sama vél var áður notuð af Gazoo Racing í GR Yaris í Evrópu en hún var 268 hestöfl.
Verkfræðingar gátu aukið aflið í 300 hestöfl með því að nota nýstárlega uppsetningu „þrefalds útblásturs“ sem minnkaði bakþrýsting, útskýrði yfirverkfræðingur GR Corolla, Naoyuki Sakamoto.
Á fyrsta ári módelsins á markaðnum stefnir Toyota að því að selja um 6.000 GR Corolla í Bandaríkjunum, þó samsetningarverksmiðjan í Motomachi, Japan, hafi árlega afkastagetu fyrir fleiri bíla, sagði Mike Tripp hjá Toyota Motor í Norður-Ameríku.
Í báðum útfærslum miðar sérhannaður rallýbíllinn að því að draga úr þyngd og að bæta burðarvirki og fjöðrun.
Gerðin er enn með „Safety Suite 3.0“ frá Toyota, með tilheyrandi ökumannsaðstoð og öryggiseiginleikum, auk 12,3 tommu upplýsingaskjás með snertiskjá og Toyota Audio margmiðlunarkerfi sem staðalbúnað.
Toyota GR Corolla 2023 er 440 cm á lengd, 185 cm á breidd og 145,2 cm á hæð, að loftnetinu undanskildu. Eiginþyngd er 1.473,7 kg.
Verðlagning fyrir Toyota GR Corolla 2023 verður birt síðar. Búist er við að bíllinn byrji að berast til umboða á fjórða ársfjórðungi, sagði Toyota.
(Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein