Tíu skemmtilegustu borgarbílarnir 2020
Góðir borgarbílar eru yfirleitt smáir, hagvæmir og auðveldir í akstri um þröngar götur bæja og borga. En þeir bestu í flokknum bera djarflega hönnun, sprækar vélar og það er skemmtilegt að aka þeim. Hér á eftir förum við yfir 10 skemmtilegustu bílana árið 2020 að mati blaðamanna Autocar.
Smábílarnir eru sífellt að verða betri. Dagar þröngu, berrössuðu og alódýrustu týpanna eru taldir. Og á meðan markaðurinn býður færri gerðir hafa þeir framleiðendur sem veðja á smábílana lyft bílum í þessum flokki upp um mörg sæti.
Listinn yfir eftirsóknarverðustu borgarbílanna er vel setinn af sniðugum litlum bílum sem hannaðir eru til að vera sérlega hagkvæmir og þægilegir í borgarakstri. Í bland við fyrrgreindu kostina eru þeir einnig glæsilegir í útliti og búa yfir ríkulegum staðalbúnaði.
Í sumum tilfellum skjóta þeir öðrum bílum í sambærilegum stærðarflokkum ref fyrir rass með því að vera liprir, sportlegri og með fínum aflgjöfum.
1. Hyundai i10
Þessi litli fákur hefur heldur betur fengið gott uppeldi á borðum hönnuða sinna. Kynslóð eftir kynslóð hefur hann styrkt stöðu sína í flokki smábíla. Hyundai i10 hefur á líftímanum sífellt aukið markaðshlutdeild sína og má ætla að nýjasta árgerðin verði engin undantekning í sigurgöngu þessa smábíls.
Bíllinn hefur heldur betur fengið yfirhalningu að innan bæði fyrir augað í aukinni hægvæmni (þetta er einfaldlega einn flottasti bíllinn í sínum flokki). Skarpar útlínur bílsins vekja athygli og hann kemur á 16 tommu flottum álfelgum. Á óvart kemur hversu bíllinn er vel búinn (active safety kit), bremsar fyrir þig, hringir í 112 ef þess gerist þörf og búinn akreinavara svo eitthvað sé nefnt. Hyundai i10 er einn af fáum bílum í sínum flokki sem enn er með fjögurra strokka vél sem gefur bílnum þokkalegt afl sem hentar vel í borgarakstri.
Auðvitað getur verið að hann standi ekki á sama stalli eins og til dæmis VW up GTI sem er vel heppnaður og mjög vel búinn borgarbíll. Þó fer i10 auðveldlega í fyrsta sætið hjá okkur.
2. Suzuki Ignis
Í gamla daga hétu ísskápar seinna nafni þessa bíls. Þessi bráðsniðugi smábíll á þessum þéttsetna markaði smábíla er einfaldlega krydd í tilveruna. Þessi Súkka kemur verulega á óvart með sérstöku útliti, fjölhæfni, plássi og mjög lítilli eldsneytiseyðslu. Sú staðreynd að hann lítur meira út fyrir að vera sportjepplingur en þeir bílar sem eru honum við hlið í samkeppninni, ætti nú ekki að saka eins og áhuginn á markaðnum er fyrir litlum sport-jepp-lingum í dag.
Suzuki Ignis er snilldarlega útfærður og alveg hellingur af plássi fyrir bíl í þessum stærðarflokki. Innréttingin er reyndar pínu plastleg og „ódýr” á köflum og margmiðlunarkerfið í Súkkunni er kannski ekki alveg að slá í gegn. Ef þú sættir þig við að ódýr bíll sé með „ódýrt” innvols á köflum svo framarlega að það er sæmilega sterkt og endingargott ertu á góðum stað með Suzuki Ignis.
Suzuki Ignis er svo sem ekkert straumlínulagaður í útliti úti á götu og kannski ekkert alveg í líkingu við útlit annarra smábíla á markaðnum en snjöll 12v mild-hybrid bílvélin gefur bílnum aukið tog akkúrat á þeim stað í afl kúrvúnni sem þess er þörf og gerir því bílinn þrælskemmtilegan í akstri. Það er gott að keyra bílinn þó svo að mýktin mætti vera meiri á holóttum vegum.
Að því sögðu tryði ég því alveg að Ignisinn með Suzuki AllGrip, aldrifinu myndi slá í gegn. Þessi litli kall myndi hæglega fara mun lengra en aðrir bílar í þessum flokki. Þannig útbúinn kæmi hann eflaust á óvart sem frábær kostur.
3. Kia Picanto
Kia Picanto hefur einsog frændi hans Hyundai i10 stækkað talsvert frá því hann sást fyrst á götunum. Nýjasta útgáfan lítur mun betur út en þegar hann kom í heiminn og að innan hefur hann einnig tekið stakkaskiptum. Þá er Kia Picanto hlaðinn staðalbúnaði sem ekki er hægt að slá skollaeyrum við. Hann skorar líka talsvert vel í akstursupplifun þrátt fyrri að að hafa verið reynsluekið á breskum sveitavegum.
Bíllinn er framleiddur með þremur vélartýpum. Það verður að viðurkennast að 1.0 lítra fjögurra strokka vélin var nokkuð lin á köflum en aftur á móti var 1.2 lítra þriggja strokka vélin mun viljugri. Þó var það 1.0 lítra þriggja strokka vélin með forþjöppu sem sló allt út. Þar kemst Hyundai i10 ekki einu sinni með tærnar þar sem Kia Picanto er með hælana.
Í raun er ekki mikið sem skilur á milli þeirra frænda, Kia og Hyundai nema ef til vill útlitið, búnaður, vélin í Kiunni og farangursrýmið sem er örlítið minna í Kiunni. Ef þér líkar útlitið á Kiunni betur, endilega veldu hann þá frekar.
4. VW Up
Það er staðreynd að VW Up er minnsti bílinn sem Volkswagen samsteypan framleiðir. Þrátt fyrir það er Up-inn langt í frá að vera einhver eftirbátur annarra Volkswagen bíla. Hann er engin bylting á markaðnum en hann stendur fyllilega undir nafni hvað varðar bíla í sínum flokki hvað frágang og útlit varðar.
Að því sögðu og þeim róttæku breytingum í vélaframboði Volkswagen fyrir Up-inn þýðir að VW Up er ekki lengur efstur á blaði sem snaggaralegasti smábílinn.
VW Up kemur með 59 hestafla þriggja strokka bensínvél sem verður að segjast frekar máttlaus en aftur á móti vegur VW Up GTI með 113 hestafla þriggja strokka túrbó vélinni upp á móti þeirri máttlausu – enda allt annar tebolli ef svo má segja. Það má því alveg segja að GTI bílinn sé ótrúlega góður kostur fyrir þá sem vilja geggjaðan bíl á hagkæmu verði.
Eins og frændurnir Seat og Skoda er UP til í rafmagnsútfærslu. Þó ætla mætti að þessi smábíll væri frábær í rafmagnsútfærslu er verðið kannski eins gott og maður gæti haldið. Reyndar er verðið rétt undir þremur milljónum hér heima.
5. Skoda Citygo-e IV
Nú er Skoda Citiygo ekki lengur ódýrasti bíllinn í þríeykinu frá Volkswagen Group. Þessi minnsti Skoda er aðeins til í rafmagnsútgáfu og er með 36,8kW rafhlöðu sem gefin er upp fyrir rétt um 274 km. akstur skv. WLTP staðlinum – eflaust ekki nema um 193 km. raundrægni.
Það hentar þessum bíl sérlega vel að vera rafmagnsbíll. Snöggur upp og upptakið er stöðugt á meðan aksturinn er mjúkur og gerir bílinn að fyrirtaks borgarbíl. Auka þyngd (rafhlaðan þyngir) og þyngdarpunktur gerir bílinn einstaklega þægilegan í akstri og tilfinninginn er eins og hann sé stór og sterkur.
Ef ekki væri fyrir verðið vegna rafvæðingarinnar væri Skoda Citigo mun hærra á listanum yfir 10 skemmtilegustu smábílana – jafnvel þó að Skodinn sé einn af ódýrari „alvöru” rafmagns bílum mun það eflaust vera stærsti hindrunin við að eignast hann.
Engu að síður er hann frábærlega vel gerður bíll, fallegt útlit og með gott notagildi – þökk sé rafmótornum er hann ódýr í rekstri sem borgarbíll. Góður kostur.
6. Toyota Aygo
Toyota Aygo fékk smá andlitslyftingu 2018 og varð við það enn huggulegri smábíll en áður. Aukinheldur fékk hann yfirhalningu á búnaði og mun meiri staðalbúnað en áður.
Þriggja strokka 1.0 lítra vélin í Aygonum var aðeins tjúnnuð upp og fór þá upp í 71 hestafl úr 68. Hins vegar er tog vélarinnar ekki að slá neitt sérstaklega í gegn með 68lb ft. og letur því bílinn eilítið í akstri.
Þeir samkeppnisaðlar sem bjóða upp á túrbínur í vélum sínum eru mun ofar á lista. Aygo hefur verið vinsæll í gegnum tíðina og snaggaralegur í akstri og er það áfram.
Snjöll uppfærsla á innanrýminu og þá sérstaklega margmiðlunarkerfinu gerir bílinn ekki síður athygliverðan. Djarft útlit, andstæður í litasamsetningu og sportlegt yfirbragð gerir þó þennan bíl enn áhugaverðari fyrir yngri kaupendur.
7. Seat Mii Electric
Sagan er eiginlega sú sama og af Skoda Citygo-e bílnum sem þú last um hér að ofan. Spánski armur borgarbíla Volkwsagen samsteypunnar er einnig drifinn rafmagni. Seat-inn er með sama rafmagnsmótorinn og Skodinn.
Á meðan Seat bíllinn gæti verið örlítið fallegri að framan en hinn Tékkneski bróðir hans er ekki auðvelt að mæla frekar með honum. Hann er eilítið stífari í akstri en það munar um 16 kílómetrum á Skodanum og Seat-inum í uppgefinni drægni – hvað Skodinn fer lengra. Þrátt fyrir það er Seat bíllinn örlítið dýrari en Skoda Citygo. Því miður hafa Seat bílar aldrei náð neinum takti á Íslandi.
8. Fiat Panda
Fiat Panda sker sig reyndar úr hvað kollegana varðar í smábílaflokknum. Þeir hjá Fiat segja reyndar að Panda sé meira alhliða bíll en bara smábíll til nota í borginni – annars er hann skemmtilega sérstakur þessi bíl og hefur alltaf verið.
Það getur verið langsótt að Fiat Panda sé í raun í beinni samkeppni við smábíla á þessum markaði hvað nýrri og straumlínulagaðri bíla varðar en hann heldur sérstöðu sinni með sínu einstaka útliti og geðugur er hann.
Þó svo að innrétting þessa litla bíls sé kannski ekki jafn nútímaleg og annarra smábíla í þessum stærðarflokki þá er hún öflugri, sterklegri og hagnýtari en margra bíla í flokki smábíla. Nú fæst Fiat Panda með mild-hybrid vél sem og fjórhjóladrifinn.
9. Fiat 500
Fiat 500 hefur verið á markaðnum í um þrjá áratugi með hléum. Það eitt og sér er all sérstakt ef við höfum í huga að bíllinn er jafn ferskur í útliti þrettán árum eftir að hann kom á markað í endurbættri nútímaútgáfu.
Og til að halda við þessum ferska andblæ hefur Fiat sett á markað mild-hybrid útgáfu með þriggja strokka 69 hestafla bensín vél.
Þetta er sama vélin og í bróður hans Pöndunni og verður eina vélin í boði uns Fiat kynnir rafmagnsmótor fyrir Fiat 500 bílinn seinna á árinu.
Fiat 500 er frekar slappur hvað afl varðar og þú verður að standa hann til að fá einhverja svörun en það er samt eitthvað krúttlegt við að keyra þennan bíl.
Fiat 500 vill sýna hvað hann getur og reynir hvað hann getur að ganga í augun á þér í akstri jafnvel þótt að aksturseiginleikar séu ekki kannski alveg þeir sömu og í nýjustu gerðum smábíla með meira afli. Hann er heldur ekki eins þægilegur og rúmgóður. Samt sem áður er hann mjög skemmtilegur bíll og án efa einn af flottari smábílum í þessum flokki. Það er eitthvað.
10. Dacia Sandero
Dacia Sandero er kannski ekki endilega nógu lítill til að teljast til ofangreindra borgarbíla en sú staðreynd að þú getur eignast hann fyrir talsvert lægri fjárhæð en flesta þeirra bíla sem eru á topp tíu listanum er næg ástaða til að hafa hann með.
Dacian er með stærra kolefnisfótspor en hefðbundinn borgarbíll og hann er einnig plássmeiri en litlu vinir hans. En lágt verð bílsins á sér svo sem kannski skýringu.
Innréttingin er pínu gamaldags, sætisstillingar skrítnar og þó svo að hann taki beygjurnar ágætlega er hann talsvert svagur í þeim. 89 hestafla þriggja strokka bensínvélin virkar samt viljug og er bara þónokkuð hagkvæm hvað eldsneytiseyðslu varðar. Með fínu leiðsögukerfi og bakkskynjurum er þessi bíll að kosta nær helmingi minna en nýtísku borgarbílarnir. Það verður að segjast góður kostur.
Byggt á grein Autocar.
Umræður um þessa grein