Bílasýningin í London, eða British International Motor Show, eins og hún hét á árunum 1903 -2008, þótti alla tíð mikilvæg sem og vegleg. Árið 1972 var þar engin undantekning.
Árið 1972 var fjölmargra nýrra gerða beðið með eftirvæntingu og má þar helst, samkvæmt Wikipediu, nefna eftirtalda:
Innlend framleiðsla: ?
- Marina Estate
- Ford Consul 2500
- Ford Granada 3ja lítra
Innfluttir bílar:?
- Audi 80
- Alfasud
- BMW 3.0CSL
- Citroën GS Camargue
- Mercedes-Benz S-Class
- Peugeot 104
- Renault 5
Í þá daga þótti ljómandi vel við hæfi að snotrar ungar stúlkur í sem efnisminnstum fötum væru í kringum bílana og brostu sínu blíðasta til gesta. Væri þetta svona í dag hefðu vísast til einhverjar raddir heyrst og mjög líklega allt orðið vitlaust.
Jæja, nóg um það og hér hefst leiðsögnin um sýninguna 1972:
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein