Þýskaland er jafnt Noregi í sölu á rafbílum í Evrópu
Þýskaland hefur farið fram úr Noregi sé horft til sölu á rafmagnsbílum frá áramótum og þar með er stærsti markaður bíla í Evrópu að verða leiðandi í sölu rafmagnsbíla á ársgrundvelli í fyrsta skipti.
Í lok nóvember voru 57.533 nýir rafbílar skráðir í Þýskalandi samanborið við 56.893 fyrir Noreg, samkvæmt tölfræði sem gefnar voru út af skráningarstofum í báðum löndum.
Noregur hefur leitt fram að þessu
Noregur hefur selt mest rafbíla í Evrópu á hverju ári síðan að minnsta kosti 2010, þegar Nissan Leaf, fyrsti fjöldaframleiddi rafbíllinn kom á markað.
Tölurnar bjóða upp á nýjar vísbendingar um að tæknin sé að verða almennari í kjarnalandi bílaframleiðslunnar í Evrópu, þar sem Volkswagen Group, BMW og Daimler eru að búa sig undir mikla aukningu rafbíla.
Þrátt fyrir að Norðmenn hafi leitt söluna, einkum vegna mikilla styrkja frá stjórnvöldum, þá eru íbúar Noregs aðeins um 6,4 prósent íbúa Þýskalands og því er vöxtur takmarkaður. Á öllu svæðinu eru ríkisstjórnir að hækka niðurgreiðslur.
„Sókn rafbíla af hálfu þýskra framleiðenda er í fullum gangi“, sagði Bernhard Mattes, formaður samtaka bílaframleiðenda í Þýskalandi, í síðustu viku.
Meira en 150 mismunandi gerðir rafbíla í Þýskalandi árið 2023
Þýskir bílaframleiðendur munu þrefalda rafbílaframboð sitt í 150 gerðir árið 2023 og fjárfesta 50 milljarða evra árið 2024, sagði hann.
Noregur og Þýskaland hafa verið nánast jafnir í sölu á rafbílum á þessu ári. Noregur hélt yfirhöndinni lengst af árið 2019, en Þýskaland sótti mjög fram undanfarna mánuði.
Tölfræði sem birt var á mánudag í NOregi sýnir að sala nýrra bíla sem eingöngu nota rafgeyma lækkaði um 27 prósent í nóvember í 3.697.
Í Þýskalandi fjölgaði þeim 9,1 prósent í 4.651, samkvæmt gögnum frá opinberu aðilum.
Jafnvel með hækkunum á síðustu mánuðum eru rafknúin ökutæki þó áfram lítill hluti af heildarsölunni og „grænkun“ bílaflotans í Þýskalandi á enn langt í land.
Víða í Evrópu samanstóð sala rafbíla aðeins 3,1 prósent af nýskráningum á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt samtökum evrópskra bifreiðaframleiðenda.
Staðbundin aukning
Fyrir síðustu tölur var Þýskaland þá þegar leiðtogi svæðisins þegar tekið var tillit til tengitvinnbíla og fullra rafbíla.
Þýskalandi hefur nú farið fram úr Noregi varðandi báðar gerðir rafmagns ökutækja.
Önnur lönd munu fylgja í kjölfar þess að neytendur á svæðinu taka upp rafbíla, að sögn Matthias Schmidt, sjálfstæðs bifreiðasérfræðings í Berlín.
„Norski raforkumarkaðurinn fyrir fólksbíla er sem stendur mjög stór fiskur í örlítilli evrópskri rafmagns tjörn, með hjálp frá örlátum stuðningi frá hinu opinbara“, sagði hann.
Samkeppni við Tesla 3
Spenningur markaðarins fyrir rafmagnsgerðum kemur enn frekar í ljós á næsta ári þegar innlendir bifreiðaframleiðendur í Þýskalandi byrja að koma samkeppnisgerðum á framfæri á móti hagkvæmustu gerð Tesla, Model 3.
Sala Tesla í Þýskalandi jókst um 130 prósent í síðasta mánuði og við lok nóvember er þeim fjölgað um 432 prósent, samkvæmt tölum skráningarstofu.
VW ID3 að koma
ID3 frá Volkswagen mun fara í sölu og byrjar á tæplega 30.000 evrum. Það er borið saman við 20.000 evrur fyrir ódýrustu útgáfu VW Golf með brunavél og u.þ.b. 44.000 evrur fyrir Tesla Model 3.
Þýsk stjórnvöld hafa einnig aukið hvata í reiðufé fyrir rafmagnsbíla sem hluta af stórum loftslagspakka. Ávinningurinn myndi byrja á bílum sem kosta undir 40.000 evrum, sem Schmidt sagði að ætti að ýta undir eftirspurn eftir hagkvæmari gerðum.
Til marks um mikilvægi hvata fyrir markaðinn hefur sala í Kína verið að minnka í fjóra mánuði í röð eftir að ríkisstjórnin minnkaði niðurgreiðslur.
Kína stendur fyrir um helmingi sölu heimsins á rafmagnsbílum. Bandaríkin eru í öðru sæti og fram til þessa hefur Noregur verið í þriðja sæti.
(byggt á Bloomberg og Reuters)
Umræður um þessa grein