Sindratorfæran á Hellu er eins konar vorhátíð akstursíþróttafólks og allra þeirra sem kunna að meta góða skemmtun á hjólum. Rymjandi vélar, stórkostlegir ökumenn, dásamlegt fólk allt um kring og afl sem fær hörðustu nagla til að tárast af hamingju. Já, það veit eflaust sá sem allt veit og hinir líka!
Í ár var Sindratorfæran tveggja daga keppni og fór hún fram um síðustu helgi. Góð mæting var báða dagana og þar sem erfitt er að gera upp við sig hvar best er að byrja og hvar best er að enda í slíkri umfjöllun fæ ég að birta hér fyrir neðan úrval helgarinnar sem Jakob Cecil tók upp og hefur klippt til í tvö ljómandi fín myndbönd.
Haukur Viðar Einarsson var í fyrsta sæti á Heklu og er bíllinn kominn með svaðalega vél sem er fleiri hestöfl en finnast í bílaflota meðalstórs íslensks bæjarfélags. Eða svona um það bil. Haukur á Heklu er einmitt á skjáskotinu (úr myndbandi Jakobs) hér efst.
Úrslit fyrstu umferðar:
1. Haukur Viðar Einarsson á Heklu
2. Þórður Atli Guðnýjarson á Spaðanum
3. Ingi Már Björnsson á Smiðju-Bombunni
Tilþrifaverðlaunin fékk Svanur Örn Tómasson á Insane
Úrslit annararar umferðar:
1. Haukur Viðar Einarsson á Heklu
2. Geir Evert Grímsson á Sleggjunni
3. Jón Reynir Andrésson á Thunderbolt
Tilþrifaverðlaunin fékk Þór Þormar Pálsson á Raptor
Nánar má lesa um stöðuna í torfærunni á vef AKÍS með því að smella hér.
Og svo er það sunnudagurinn:
Fleira torfærutengt:
Þeir byrja ungir á Akureyri
Íslandsmeistari í torfæru setur öðruvísi heimsmet
Maður horfir á íslenska torfæru í fyrsta sinn
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein