- Núna liggur fyrir hvaða bílar eru komnir í úrslit fyrir verðlaunin Bíll ársins 2024.
Úr langa listanum af 28 gerðum hefur dómnefnd 59 blaðamanna sem eru fulltrúar 22 landa valið eftirtalda sjö tilnefnda (í stafrófsröð):
- BMW 5-lína
- BYD Seal
- Kia EV9
- Peugeot E-3008/3008
- Renault Scenic
- Toyota C-HR
- Volvo EX30
Úrslit kynnt í Genf 26. febrúar
Eftir frekari reynsluakstur mun lokaumferð atkvæðagreiðslunnar skera úr um bíl ársins 2024 og sigurvegarinn verður tilkynntur við hátíðlega athöfn á bílasýningunni í Genf mánudaginn 26. febrúar.
(frétt á vef caroftheyear.org)
Umræður um þessa grein