Þegar felguboltar eru allt of hertir
- Gott að vera með lengra skaft á felgulyklinum
Sem betur fer er það miklu sjaldgæfara í dag að dekk springi á bílum, og raunar er það svo í mörgum tilfellum að það eru naglar, skrúfur eða aðskotahlutir sem valda því að dekkin tapa lofti.
Þetta kom fyrir skrifara á dögunum, á leiðinni í sveitina kom tilkynning upp í mælaborðinu að hægra afturhjólið væri að tapa lofti – ekki miklu en nóg til þess að þrýstingurinn var farinn að lækka, kominn niður í 28 úr 35 sem hann á að vera.
Þegar í sveitina var komið fannst sökudólgurinn; skrúfa hafði stungist inn í dekkið og með henni lak loftið.
Ég er svo heppinn að vera á bíl sem er með varadekk, svo næsta skref var að taka „leka dekkið“ undan og setja varadekkið í staðinn.
En þá upphófst vandinn – hvorki meðfylgjandi felgulykill, né stóra skaftið í toppasettinu sem var einnig með náði að losa felgurærnar. Þetta er örugglega vandamál hjá mörgum því dekkjaverkstæðin nota öflugar vélar til að herða rærnar – svo mjög að við aumingja ökumennirnir náum ekki að losa þær.
Ég fór að leita að einhverju til að nota til að auka „vogaraflið“ á lykilinn, en fann ekkert í fyrstu. Fékk svo lánaðan rörbút til að nota sem „framlengingu“ hjá nágranna mínum þarna í sveitinni, og það dugði.
Framlengingarskaft er nauðsyn
Í mörg ár hef ég haft rörbút með felgulyklinum til að „lengja“ átakið, og seinni árin var ég með sérstaka „útdraganlega“ framlengingu, sem er sérhönnuð til svona verka.
Ég gleymdi hins vegar að koma mér upp svona búnaði þegar ég skipti um bíl síðast, en það verður snarlega ráðin bót á því, þannig að þessi vandi komi ekki upp aftur.
Umræður um þessa grein