Þriðjudaginn 13. september 1977 birtist frétt í Dagblaðinu um undarlegt ökutæki:
Upphaflega var það Skodi
„Klukkan 18.35 á laugardaginn tók lögreglan í Árbæ „ökutæki” nokkurt úr umferð. Varla var hægt að sjá hvað þetta var en lögreglan taldi þó að upphaflega mundi þetta hafa verið Skodi.
Það vantaði þó ýmislegt á Skodageyið, t.d. smáatriði eins og bretti og hús.
Á þessu höfðu þó tveir piltar þeyst á allt að 80 kílómetra hraða á klukkustund og skemmtu sér vel. Þeir voru ekki ölvaðir, bara haldnir ólæknandi bíladellu.“
Þessu tengt:
Ljótt af blaðamanni að nota orðið bíldrusla
Skellinöðrufaraldurinn og Hannes á horninu
Dauðinn á þjóðveginum [Miklubrautinni]
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein