Íslenskur rafbílamarkaður hefur hitnað töluvert við að Tesla tilkynnti verðlækkanir á Model Y og Model 3 bifreiðunum í gær. Lækkanirnar, sem eru umtalsverðar, nema frá 2,9% upp í 6,3% og eru í takti við viðbragð Tesla erlendis við innkomu kínverska framleiðandans XPENG á markaði.
XPENG gæti því reynst Teslu raunverulegur keppinautur ef marka má verðlækkanirnar sem skila til dæmis Tesla Y nánast upp á krónu á sama stað og verðið er á XPENG G6, sem er bíll í sama stærðarflokki.
Þannig kosta afturhjóladrifnir bílar beggja framleiðenda í sömu stærð kr. 5.990.000 með orkustyrk, þótt munur sé á útbúnaði og ábyrgð. Verðlækkun Tesla kemur rúmum tveimur vikum eftir að bílaumboðið Una opnaði, sem hefur umboð fyrir XPENG hér á landi.
Vinsælir á heimsvísu
XPENG hefur náð miklum vinsældum á heimsvísu og hafa viðbrögð keppinauta verið eins þar og hér á landi, þar sem Tesla hefur lækkað verð til að sýna fram á samkeppnishæfni.
Þá hefur XPENG gefið út að rafbílaheimurinn muni komi til með að breytast hratt á komandi árum þar sem að nú séu komin raunverleg gæði á markaðinn til að keppa við þá sem þar eru fyrir. Þrátt fyrir ýmsar áskoranir á evrópskum markaði hefur XPENG byrjað að festa sig þar í sessi, einkum í Noregi þar sem framleiðandinn hefur skráð 301 ökutæki í september eftir að hafa selt 18 árið áður.
XPENG er jafnframt í samstarfi við 12 staðbundin umboð ásamt því að vera til staðar á 24 sölustöðum í Þýskalandi. Fyrirtækið hefur einnig stækkað umsvif sín í öðrum Evrópulöndum, þar með talið í Frakklandi, á Ítalíu og í Bretlandi.
„Markmið okkar fyrir XPENG er alltaf að bjóða upp á framúrskarandi rafbíla á hagstæðu verði. Viðtökurnar á bílunum hafa farið fram úr okkar björtustu vonum og kaupendur eru gríðarlega ánægðir.
XPENG er greinilega að ýta við markaðnum, enda gæðastaðallinn hár og verðmiðinn sanngjarn. Svo skemmir ekki að það er lengri ábyrgð en gengur og gerist á bæði bílum og rafhlöðum.
Þetta er jákvætt heilt yfir fyrir bílamarkaðinn hér heima þar sem aukið framboð rafbíla styður við áætlanir um orkuskipti í samgöngum og sjálfbærni. XPENG er nýtt merki með vandaða framleiðslu inn á þennan markað sem þörf var á,” segir Þorgeir Pálsson framkvæmdastjóri XPENG á Íslandi.
Um XPENG
XPENG Motors var stofnað árið 2014 og er með höfuðstöðvar í Guangzhou í Kína. Fyrirtækið er leiðandi framleiðandi rafbíla sem leggur áherslu á snjallt viðmót og háþróaða tækni. XPENG starfrækir rannsóknar- og þróunarmiðstöðvar í bæði Kína og Silicon Valley í Bandaríkjunum og er staðráðið í að þróa rafbíla með nýjustu tækni á sviði gervigreindar og sjálfkeyrandi eiginleika.
Í bílaflota XPENG má telja G6 jepplinginn, P7 og G9 lúxusjepplinginn, en XPENG hefur einnig verið að færa út kvíarnar á erlendum mörkuðum, þar á meðal í Evrópu.
Fyrirtækið er skráð á hlutabréfamarkað í New York (NYSE: XPEV) og er ört vaxandi keppinautur við stærri aðila eins og Tesla á alþjóðlegum rafbílamarkaði. Bílaumboðið Una annast sölu XPENG á Íslandi, en umboðið er systurfyrirtæki Bílaumboðsins Öskju og opnaði í september sl.
Umræður um þessa grein