Tesla bílar tapa toppeinkunn
Consumer Reports, National Highway Traffic Safety Administration og Insurance Institute for Highway Safety eru búin eða ætla að lækka einkunn eða stöðu Tesla Model 3 og Model Y varðandi öryggi segir í frétt Autoblog.com og fleiri miðlum.
Ástæðan sem CR, IIHS og NHTSA tilgreina er að Tesla notar ekki ratsjá í Model 3 og Model Y í bílum afhentum í maí og síðar.
Til að fá toppeinkunn varðandi öryggi þarf að vera rafmagns eða tölvu öryggiskerfi í bíl.
Tesla er að skipta yfir i nýtt kerfi sem er kallað “Tesla Vision” sem notast við myndavélar í Model 3 og Y en afhending fyrstu bílanna hefst í maí.
Ásamt myndavélunum notar Tesla sitt „neural network computer processing for safety systems“ (innbyrðis nettengd (ekki Internet svo það sé á hreinu) tölvuvinnsla fyrir öryggiskerfin í bílnum) og líka Tesla „Autopilot” og „Full Self-Driving” hluta sjálfvirk aðstoðarkerfi fyrir ökumanninn.
Tesla notar líka sónar (hljóðtækni) skynjara sem hafa stutt fjarlægðarsvið.
Átta myndavéla útsýniskerfið virkar betur en bestu ökumenn og er skref í átt að sjálfkeyrandi bílum sem Tesla stefnir að segir Elon Musk.
Gagnrýnendur segja að þó Tesla væri með ratsjá sé Tesla ekki með rétta gerð skynjara fyrir sjálfkeyrandi bíla. Tesla er ekki að nota leysigeisla (ljóstækni) skynjara sem eru kallaðir lidar sem sjá í gegnum dimmu og slæmt veður, segja þeir.
Flest önnur fyrirtæki sem eru að prófa sig áfram með sjálfkeyrandi bíla nota lidar skynjara.
Autopilot kerfi Tesla hefur átt í vandræðum með að skynja kyrrstæða hluti og vörubíla með eftirvagna sem eru að beygja fyrir framan Tesla bíla. Að minnsta kosti þrjár manneskjur hafa látist akandi með Autopilot kerfið á þegar bíllinn ók undir eftirvagn eða hindrun á veginum.
Að auki hafa Teslur með kveikt á Autopilot ekið á kyrrstæða lögreglu- og slökkviliðsbíla sem voru með blikkandi forgangsljós.
NHTSA, sem gegnir hliðstæðu hlutverki og Samgöngustofa, hefur kannað 29 atvik þar sem Teslur koma við sögu, en hefur ekki gripið til neinna aðgerða varðandi Autopilot. National Transportation Safety Board (líka með svipað hlutverk og Samgöngustofa) hefur mælt með því að NHTSA og Tesla takmarki notkun Autopilot við vegi þar sem hægt er að nota kerfið á öruggan hátt og að Tesla setji betri búnað í bílana sem tryggir að ökumaðurinn fylgist með því sem er að gerast.
Á heimasíðu Tesla er tekið fram að sumir bílar gætu verið afhentir með einhver öryggisatriði sem hafa verið gerð óvirk eða virkni þeirra takmörkuð tímabundið.
M.a. er “Autosteer,” sem heldur bílnum á akrein eða kannski réttara sagt kemur í veg fyrir að hann skipti um akrein. Það kerfi fær ný mörk sem eru 120 km/klst hraði og meiri fjarlægð frá umferð fyrir framan bílinn en áður.
Elon Musk hefur verið gagnrýndur af CR og öðrum fyrir að kalla kerfin sín „Autopilot“ sem gefur í skyn að bíllinn geti ekið sér sjálfur og “Full Self-Driving,” þó bílarnir geti ekki ekið án aðkomu ökumanns.
Umræður um þessa grein