Meira að segja Jeremy Clarkson, sleggjan úr Top Gear, var eitt sinn ungur. Eða alla vega yngri. Hér er bráðskemmtilegt 25 ára myndband með Clarkson en hann hafði þá verið einn kynna Top Gear þáttanna í 9 ár.
Það er óhætt að segja að hinn tæplega sextíu og tveggja ára gamli Jeremy Clarkson hafi verið áberandi í sjónvarpi býsna lengi, eða í 34 ár, samkvæmt nýjustu útreikningum.
Hann er gott dæmi um skemmtilegan þáttarstjórnanda sem ekki fékk vinnu í sjónvarpi útlitsins vegna. Hann er einfaldlega skemmtilegur. Í dag er hann einn þriggja stjórnenda þáttanna The Grand Tour en þekktastur er hann þó fyrir Top Gear þættina á BBC ásamt þeim James May og Richard Hammond.
En hér er myndband frá árinu 1997, úr Top Gear þætti, og til umfjöllunar eru hinar ýmsu útfærslur af Ford Transit. Ljómandi gott og hressandi á þriðjudegi sem þessum!
Annað „gírað“ frá öðrum tíma:
Íslandsáskorun Top Gear og Bentley
Ofur-Yaris(ar) til sölu á Akureyri
Top Gear-Ollie segir ID Buzz svaðalega spennandi
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein