Sunnudagseftirmiðdag nokkurn brugðum við mæðgin okkur í bíltúr. Þetta var haustið 2013 og var ætlunin að heilsa upp á fuglana í fjörunni við Eyrarbakka.
Sjaldnast er nú mikill hamagangur á Eyrarbakka og virtist þessi sunnudagur ekki frábrugðinn öðrum hvað það snerti.
Þar hafði ég heldur betur rangt fyrir mér!
Við kirkjuna stökk maður upp að bílnum og ég „skrúfaði“ niður rúðuna. „Stopp! Það er skriðdreki að koma og ef þú heldur áfram fletur hann ykkur og bílinn út,“ sagði upptjúnaður maður í lopapeysu. Sonur minn, fimm ára gamall, varð frekar hvekktur og mér leið ekki vel með þetta. Ég lagði bílnum eitthvað frá en skildi enn ekki hver röndóttur væri að gerast þarna. Það var nefnilega dauðaþögn í litla þorpinu þegar við stigum út úr bílnum.
Ískur er seint gleymist
Þögnin var rofin skömmu síðar og viðurstyggilegt ískur braut eflaust fín bifhárin í eyrum manns. Þetta ískur er hljóðið sem verður til þegar um 40 tonna skriðdreki göltrast eftir götunni. Aðalgötunni á Eyrarbakka. Kannski er hljóðið öðruvísi á Stokkseyri. Enn vissum við ekki hvað um var að vera en bæjarbúi nokkur leiddi okkur í allan sannleika um „dauðaþögnina“ og það sem svo kom: Hér var verið að taka upp Dead Snow II eða Død snø II. Norska kvikmynd um nasistauppvakninga…

Ekki skánaði þetta þegar alblóðugir „uppvakningar“ komu þrammandi. Í miklu fáti rauk ég með blessað barnið inn í bílinn og beið færis að komast frá þessum hryllingi – án þess að verða undir skriðdreka.
Sonur minn hélt fyrir augun þar til ég sagði að „allt ljótt“ væri horfið.
Nóg komið!
Augnabliki síðar heyrðist niðurbælt óp úr aftursætinu. Syni varð litið út og viti menn! Þar, á milli húsa og kartöflugarða, var skriðdrekaskömmin að fletja út tvo gamla lögreglubíla! Nei, þetta var of mikið fyrir ungan mann. Allt of mikið.

Skriðdreki með bláan ógeðslegan reyk allt um kring er eitt. Viðurstyggilegir og blóðugir uppvakningar er svo annað. En að sjá lögreglubíla kramda var of mikið.
„Mamma, getum við ekki bara farið?“ spurði sá stutti og það gerðum við.

Það gleður mig að sonur man ekki eftir þessu og sálrænu áfalli (trauma) var afstýrt þennan sunnudag, haustið 2013. Ætli ís, bílasölurúntur og markvissar samræður um mannlausa gamla lögreglubíla sem fara tvisvar í pressuna, hafi ekki átt sinn þátt í því.
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
?
Umræður um þessa grein