Laugardaginn 11. nóvember verður sannkölluð stórsýning hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ á Selfossi og Akureyri. Sýningarsalir opna klukkan 12 og tekið verður á móti gestum til kl. 16.
Á sýningunni má sjá rafmagnað bílaúrval frá Toyota, bæði hreina rafmagnsbíla og tengiltvinnbíla. Gestir eru sérstaklega hvattir til að reynsluaka rafbílum því dregið verður úr nöfnum þeirra sem reynsluaka og þeir heppnu fá 50.000 kr. Gjafabréf sem nota má í Smáralind eða á Glerártorgi á Akureyri.
Ekki nóg með það heldur verður einnig boðið upp á hátíðlegt góðgæti fyrir alla fjölskylduna frá Myllunni, Nóa Síríusi og Ölgerðinni.
(fréttatilkynning frá Toyota á Íslandi)
Umræður um þessa grein