Þess verður minnst um komandi helgi, að 60 ár eru liðin frá því Ford Mustang sá fyrst dagsins ljós. Þá verða dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang-bílar landsins samankomnir á sérstakri afmælissýningu í Brimborg.
Aðgangur er ókeypis og sýningin, sem fram fer í Ford salnum að Bíldshöfða 6, verður opin frá kl. 10-16 á laugardaginn 4. maí.
Á staðnum verða um 35 Mustang bílar af öllum kynslóðum til að fagna afmæli Mustang, samtals um 15.000 hestöfl.
Meðal bílanna verður Mustang Shelby GT-500 frá 2021 sem nýjasti Shelby GT-500 landsins.
Elsti Ford Mustang landsins verður einnig til sýnis. Sá var framleiddur 8. maí 1964, eða einungis þremur vikum eftir að Ford Mustang kom fyrst á markað.
Ford Mustang High Country Special af árgerðinni 1966 en aðeins 333 eintök voru smíðuð og þessi bíll er eini bíllinn utan Bandaríkjanna. Þessi bíll er nýkominn úr gagngerri uppgerð.
Ford Mustang Cobra Jet 2007 og Ford Mustang Cobra Jet 2018, einn af 68 bílum sem framleiddir voru það árið. Þetta eru sérsmíðaðir kvarmílubílar með um 1400 hestafla mótora.
Þetta er einungis brot af því bílaúrvali sem verður til sýnis en meðal fjölda annarra spennandi bíla verða Mustang Saleen Sterling S302E, en af honum voru einungis 25 framleiddir; Mustang LX frá 1986, sem er einn hraðskreiðasti Mustang landsins og einnig meistaralega uppgerður Mustang Mach-1 frá 1971.
Umræður um þessa grein