Stærsti jöklatrukkur í heimi við Hörpu
Hann heitir Sleipnir stærsti jöklatrukkur í heimi sem var til sýnis fyrir gesti og gangandi við Hörpuna í dag. Þessi gríðarstóri fólksflutningabíll tekur um 50 manns í sæti og boðið er upp á fyrsta klassa aðbúnað.
Bíllinn er búinn öllu því besta sem völ er á til fólksflutninga, sjónvarpsskjám, leðursætum og nægu fótaplássi. Dekkin á trukknum eru um 78 tommur sem nemur nálægt tveimur metrum. Hæðin á dekkjunum er svipuð og hæð meðalmanns. Auðvelt er að njóta útsýnis í trukknum því gluggar ná frá miðju og alveg upp á topp hans.
Eftir um eins og hálfs árs vinnu og yfir 70 milljóna króna fjárfestingu er þessi stærsta jöklarúta og líklega stærsti bíll í heimi tilbúinn í jöklaferðir.
Í sumar stendur til að rúnta upp á Langjökul með íslendinga innanborðs. Um er að ræða ferð upp í rúmlega 1400 metra hæð og þar er fyrirhugað að bjóða upp á grill, snjóbolta, fótbolta, afslöppunar og útsýnis – eða þess sem hópurinn óskar.
?Í boði verða ferðir fyrir allt að 48 manns og hægt að sérsníða ferðir eftir óskum. Sleipnir er þýður og til í flest og fátt sem hindrar þennan stærsta trukk í heimi nema kannski merktir þjóðvegir.
4,15 m á hæð 15 m á lengd
Sleipnir er engin smágræja og óhætt er að segja að þessi trukkur fangi augað þegar maður lítur á hann. Enda er hann búinn sætum með tveggjapunkta belti fyrir 48 farþega í hallanlegum leðursætum sem er einnig hægt að auka bil á milli farþega þannig sætin sem eru við ganginn er hægt að toga útí ganginn ef þörf krefur. í bakinu á sætunum er einnig borð og netkarfa fyrir lauslega muni.
Caterpillar C18 Acert Disel stilt í 850 hestöflum í 2100 snúningum 18,1 L
Sjálfskipting: Allison 4800SP 7 þrepa skipting – nánari upplýsingar hér.
Millikassi: Optima OPS0573 Drif: Axeltech Dekk: 8 x Alliance 393 78″ dekk – nánari upplýsingar hér.
Grindin er úr E-One flugvallar slökkvibíl. Einnig er þurrslaerni aftast í bílnum
Græjur
Það er engin hætta á að ekki sé hægt ná upp stemningu í bílnum því hann skartar vægast sagt kraftmiklum hljómtækjum. Þær eru ekki af verri endanum.
Alpine CDE-195. Nokkrir magnarar sem skila 700 rms w í afli. 12 x 17 cm. Kenwood hátalarar. 2 x Alpine PWE S8 – 8″ bassabox undir sætum fyrir miðju. 12″ Alpine bassakeila aftast
Bókanir og fyrirspurnir sleipnir@sleipnirtours.is – og 866 0789
Umræður um þessa grein