Staðfest að nýr Audi Q6 e-tron verði frumsýndur árið 2022
- Rafknúinn Audi Q6 e-tron jeppi mun koma á næsta ári og deila tækni með næstu kynslóð Porsche Macan rafbílnum
Markus Duessman, stjóri Audi, hefur staðfest að nýi Audi Q6 e-tron rafknúni sportjeppinn muni verða frumsýndur árið 2022 og byggi á nýjum Premium Platform Electric (PPE) grunni Volkswagen Group, sem Audi er að þróa með Porsche.
Q6 e-tron verður fyrsti Audi til að setjast í PPE grunninn og mun deila tæknilegum atriðum með næstu kynslóð al-rafknúins Porsche Macan.
Hann mun sitja fyrir ofan Q4 e-tron jeppa, fyrsta Audi-bílnum sem notar MEB grunn VW Group, og verður einn af meira en 20 rafbílum sem Audi mun setja á markað árið 2025.
Þýska vörumerkið hefur sett sér það markmið að þriðjungur sölu fyrisrtækisins verði rafknúinn um miðjan áratuginn og Q6 e-tron mun vera lykilatriði í leit Audi til að ná þessu markmiði.
PPE vettvangurinn mun nota 800 volta rafrænan grunn og getur því veitt hraðhleðslu í allt að 350 kW.
Aksturssvið verður meira en 480 km verður einnig mögulegt; PPE er þróun J1 grunnsins sem liggur til grundvallar Audi e-tron GT og RS e-tron gerðunum, sem bjóða að lágmarki 480 km (WLTP) aksturssvið í grunngerð e-tron GT.
469 hestöfl (523 hestöfl fáanleg með auknu afli) og drifrás með aldrifi mun líklega rata í Q6 e-tron, en afkastameiri gerð gæti boðið upp á allt að 636 hestöfl fyrir mögulegan Q6 e-tron RS í framtíðinni.
Q6 e-tron mun fara í framleiðslu í Ingolstadt verksmiðju Audi á næsta ári, sem vörumerkið er að breyta í framleiðslulínu fyrir aðeins rafknúna bíla, fjarlægja núverandi búnað sem framleiðir A3 fjölskyldubílinn og skipta um framleiðsluaðstöðu til að koma til móts við PPE grunninn.
Þetta felur einnig í sér þróun rafgeyma samsetningaraðstöðu „í beinu umhverfi bílasamstæðu,“ að sögn Duessman.
Í kjölfar Q6 e-tron staðfesti Audi að fyrsta „Project Artemis“ módelið mun koma til sögunnar árið 2024. Bílnum verður beint að lúxusgeiranum og mun leiða þróun Audi í framtíðinni á rafrænum ökutækjum, tækni og stýrikerfum.
(grein á Auto Express)
Umræður um þessa grein