Sendibílar frá Rússlandi á evrópska vegi
- Stellantis ætlar að hefja útflutning á rússneskum sendibílum til V-Evrópu í febrúar
- Stellantis mun flytja út Peugeot, Opel og Citroen sendibíla frá verksmiðju sinni í Kaluga í Rússlandi til að mæta aukinni eftirspurn
PARIS – Stellantis mun hefja útflutning á vörubílum til Evrópu frá verksmiðju sinni í Kaluga í Rússlandi, til að mæta aukinni eftirspurn, sagði bílaframleiðandinn.
Byrjað verður á útflutningi með þremur „systkinategundum“ í meðalstærð; Peugeot Expert, Opel Vivaro og Citroen Jumpy.
Framleiðsla hófst í desember en fyrstu sendingar eru áætlaðar í febrúar.
Stellantis sagði í tilkynningu á þriðjudag að framleiðsla í Kaluga verksmiðjunni tvöfaldaðist árið 2021 samanborið við 2020. Verksmiðjan, sem er samstarfsverkefni með Mitsubishi, hóf smíði sendibíla árið 2017 fyrir fyrrum PSA Group, sem sameinaðist Fiat Chrysler og myndaði Stellantis.
Kaluga verksmiðjan opnaði árið 2010 eftir fjárfestingu upp á 470 milljónir evra.
Árleg afkastageta verksmiðjunnar er 125.000 farartæki.
Verksmiðjan er að verða alþjóðleg útflutningsmiðstöð Stellantis og hefur bætt við nýjum verkefnum á síðasta ári.
Þar á meðal eru áform um að setja saman nýjan Fiat Scudo (útgáfu af Peugeot, Citroen og Opel sendibílum) til útflutnings í lok árs 2022; samsetning dísilvéla og handskiptra gírkassa til útflutnings, sem og framleiðslu á litlum sendibílum fyrir fjölda Stellantis vörumerkja.
Verksmiðjan smíðar í dag Outlander og Pajero gerðirnar fyrir Mitsubishi.
Kaluga, um 180 km suðvestur af Moskvu, er orðin miðstöð rússneska bílaiðnaðarins. Volkswagen Group opnaði þar samsetningarverksmiðju árið 2007, eins og Volvo vörubílar.
Áberandi birgjar á svæðinu eru Continental, Magna International og Visteon.
Það gæti set strik í reikninginn ef einhver átök verða í Austur-Evrópu á næstunni. Bandarísk stjórnvöld hafa hótað víðtækum refsiaðgerðum til að fæla Rússa frá því að ráðast inn í Úkraínu – ráðstöfun sem Moskva neitar – sem gæti hindrað aðgang landsins að alþjóðlegum rafeindabirgðum, þar á meðal fyrir bílaiðnaðinn.
(Reuters og Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein