Toyota á Íslandi býður upp á sumarstemningu á viðurkenndum sölustöðum Toyota um helgina og sölumenn í samningastuði
![](https://www.bilablogg.is/wp-content/uploads/2024/06/IMG_5245-min-1024x576.jpeg)
![](https://www.bilablogg.is/wp-content/uploads/2024/06/IMG_5246-min-1024x576.jpeg)
![](https://www.bilablogg.is/wp-content/uploads/2024/06/IMG_5243-min-1024x576.jpeg)
![](https://www.bilablogg.is/wp-content/uploads/2024/06/IMG_5241-min-1024x576.jpeg)
Við kíktum við í Toyota í Kauptúni þar sem nýbúið var að opna fyrir gestum og gangandi. Toyota auglýsti sumarhátíð um helgina og sögðu lykilinn að sumrinu væri hjá Toyota.
Í sýningarsal var Toyota Corolla Cross áberandi en hann er verulega góður kostur fyrir þá sem þurfa bíl til lengri ferða. Allir Corolla Cross eru með fimmtu kynslóðar hybrid kerfisins sem gefur meira afl og minni eyðslu. Bíllinn er einnig í boði með hugvitssömu aldrifi.
Litli bróðir Corolla Cross er hins vegar Yaris Cross, sambærilegur að mörgu leyti nema aðeins minni bíll.
![](https://www.bilablogg.is/wp-content/uploads/2024/06/IMG_5242-min-1024x576.jpeg)
Toyota Corolla Cross.
Toyota unnendur bíða svo spenntir eftir nýju flaggskipi, Land Cruiser 250 en við fylgjumst grannt með hjá Bílabloggi þegar hann lendir.
![](https://www.bilablogg.is/wp-content/uploads/2024/06/IMG_5250-min-1024x576.jpeg)
Yaris Cross.
Við reynsluókum þessum skemmtilega bíl þegar hann kom fyrst og hér má sjá umsögn okkar.
Umræður um þessa grein