Sala VW í Kína komin í gang aftur eftir lægð vegna kórónavírus
Þegar við sjáum sölu nýrra bíla dragast hratt saman í Evrópu vegna kóvid-19 faraldursins sér Volkswagen Group fram á að sala bifreiða í Kína muni fjórfaldast í mars, að sögn stjórnanda VW þar í landi, og benti á bata í kjölfar heimsfaraldursins.
„Við erum varlega bjartsýn á að verstu áhrif kreppunnar muni liggja að baki eftir tvo til þrjá mánuði,“ sagði Stephan Woellenstein, yfirmaður viðskipta hjá VW Group í Kína.
Eftirspurnin var enn takmörkuð, að því er bílaframleiðandinn sagði, en VW er reiðubúinn að bæta við afkastagetu í verksmiðjum sínum í landinu, þar af 22 sem höfðu hafið framleislu á ný. Tvær bifreiðarverksmiðjur í Changsha og Urumqi eru enn lokaðar, sagði bifreiðaframleiðandinn.
Woellenstein sagðist búast við að heildarsala á markaði yrði allt að 1 milljón í mars, upp frá 250.000 í febrúar.
Vonin snýr aftur á kínverska markaðinn
„Það eru fleiri og fleiri merki um að viðskipti séu að ná sér. Um mitt ár gætum við farið aftur í áætlanagerð síðasta árs. Vonin snýr aftur á kínverska markaðinn,“ sagði Woellenstein.
Árið 2020 gerir Volkswagen ráð fyrir 3-15 prósenta samdrætti á kínverska markaðnum en staðfesti áform um að fjárfesta meira en 4 milljarða evra á þessu ári þar með um 40 prósent af þeirri fjárhæð sem varið er til rafknúinna bíla.
„Við gerum ráð fyrir að batinn haldi áfram og að við munum starfa í venjulegu markaðsumhverfi aftur árið 2021,“ sagði Woellenstein.
Volkswagen hyggst selja 1,5 milljónir rafbíla í Kína á ári frá 2025.
Umræður um þessa grein