Hefur þú heyrt minnst á „raggara“? Sænskt bílafólk sem gjarnan ekur um á gömlum flekum og er ekkert að flýta sér um of? Hér er stórmerkileg skilgreining frá 1961 á sænskum „bílagæjum“.
Eftirfarandi grein birtist í Alþýðublaðinu í lok maí 1961:
Fylgifiskur hinnar miklu velmegunar Svía eftir stríð eru „bílaóðir“ unglingar, sem Svíar kalla „Raggara.“
Óvíða í heiminum, t d. í Evrópu eru eins margir bílar í einkaeign og í Svíþjóð — meira en einn bíll á hverja sjö íbúa — og mörg þúsund ungra Svía um og yfir tvítugt eiga eigin bifreiðir.
Orðið „Raggari“ er sænskt slanguryrði, sem upphaflega þýddi ökumaður, sem narrar ungar stúlkur upp í bíl sinn, en orðið hefur nú misst fyrri merkingu sína. Nú er það notað um uppreisnargjarna og ódæla unglinga. „Raggararnir“ hafa staðið fyrir fjölda uppþota og öðrum skríslegum uppátækjum um gervalla Svíþjóð á undanförnum mánuðum.
Gera „allt vitlaust“
Svo að örfá dæmi séu tekin, má nefna, að í fyrra sumar brenndu þeir tjöld og kamra í tjaldbúðum útilegufólks við Kristianstadt, rán á heyrnartækjum úr Uppsaladómkirkju um síðustu jól og fjöldamörg minniháttar uppþot og stympingar við lögregluna.
Mjög hefur borið á því að „Raggarar“ aki í hópum til einhvers lítils staðar og geri „allt vitlaust.“ Þetta gera þeir venjulega um helgar og ónáða þorpsbúana með hávaðasömum „partíum“, skrílslátum og yfirleilt með ruddalegri framkomu og hávaða.
Á Skáni voru svo mikíl brögð að þessu, að lögreglan varð að kalla út liðsauka á vettvang í bæjunum þar, ef ske kynni að „Raggararnir” gerðu innrás í einhvern þeirra.
Ljótasta dæmið
En Ijótasta dæmið um skrílslæti Raggaranna er frá því í október 1959.
Laugardagskvöld nokkurt í þeim mánuði dreif að heila bílalest Raggara í bæinn Varberg á Skáni. Þeir ,,rúntuðu“ um allt aðaltorgið í bænum og trufluðu alla umferð, þreifandi fullir raggarar óðu inn í búðir og rændu öllu lauslegu og eyðilögðu annað. Þá fóru þeir að káfa í ungu stúlkurnar í bænum og höfðu ofbeldi í frammi við aðra þorpsbúa. Þessu lyktaði með allsherjar slagsmálum við þorpsbúana og lögregluna og höfðu Raggararnir hjólakeðjur og stóllappir að vopni. Margur særðist og varð hart út leikinn hjá báðum aðilum.
Sumir ágætir
Eftir atburð þennan fór lögreglan á Skáni að hafstrangara eflirlit með ung um ofbeldisseggjum. Hún varð sér úti um sérstaka lögreglubíla búnum sendi tækjum og þannig gat hún fylgzt með ferðum þeirra og gert þorps- og sveitarlögreglu viðvart.
En allir Raggarar eru ekki svo slæmir. Sænsku blöðin hafa oftar en einu sinni slegið því upp á forsíðum að Raggarar hafi heimsótt gamalmennahæli og skemmt vistmönnum og jafnvel að þeir hafi farið með krypplinga í ökuferðir upp í sveit.
Fyrirmyndin: Brando
Raggarar eru nýtt fyrirbæri af „leðurjökkunum“, sem vöktu mikinn ugg sænsku lögreglunnar fyrir nokkrum árum. Þá má geta þess, að Raggararnir fjölmenna ætíð á Marlon Brando myndina „The Wild Ones“, sem sýnd hefur verið hér heima í Stjömubíói. Þessi mynd um skellinöðru gæja í smáþorpi nýtur gífurlegra vinsælda í Svíþjóð og hefur verið endursýnd hvað eftir annað.
Svo mörg voru þau orð í Alþýðublaðinu forðum daga! Raggarar nútímans eru dálítið öðruvísi en meira um þá síðar.
Forsíðumyndin er tekin í Svíþjóð árið 1966 og fengin af vef Wikimedia Commons.
Þessu tengt:
„Lowrider“ – Hvað og af hverju?
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein