Sportlegur rafdrifinn borgarbíll
Nýr Opel Mokka er sjálfsagt einn af þeim bílum sem hefur fengið hvað ríkulegasta uppfærslu á árinu 2021.
Gjörbreyttur Mokka e byggður á grunni nýja Opel Corsa kemur virkilega á óvart.
Þetta er bíll sem gott er að aka og vekur athygli fyrir djarft útlit.
Höfðar til margra
Hönnuðir Opel hafa teiknað bíl sem bæði virkar hvorutveggja sem hefðbundinn bíll með brunavél ásamt því að bera einkenni rafmagnsbílsins.
Með tiltölulega litlum breytingum ná hönnuðurnir fram mismunandi stíl – eins og sportlegum 17 eða 18 tommu felgum, svörtu þaki og vélarhlíf og spennandi litasamsetningum.
Vandað til verka
Að innan er útlit og efnisval í sérflokki. Framsæti eru sérlega vel heppnuð og halda mjög vel við bak og læri enda eru þau hönnuð í samstarfi við þýska baklækna.
Aftursætin eru reyndar mjög góð líka en bak þess nánast lóðrétt.
Opel Mokka e er náskyldur bróður sínum Corsa sem kom, sá og sigraði á síðasta ári. Báðir 100% rafdrifnir og með sama rafmótor en drægni Mokka e er eilítið minni vegna stærðar- og þyngdarmuns.
Nýr Mokka e er um 1600 kg. að þyngd og farangursrýmið er nánast í sömu stærð og bróðir hans Corsa, heilir 350 lítrar.
Það vekur hins vegar athygli að innanrými Mokka e er minna en í Corsa með aftursætin niðurfelld.
Tilvalinn borgarbíll
Bíllinn kemur með 50 kWst. rafhlöðu sem dregur allt að 325 kílómetra skv. WLTP staðli. Hér heima í íslensku veðri má reikna með að bíllinn sé að komast um 200-230 km. á hleðslunni.
Hestöflin eru 136 talsins og togið um 260 Nm. Það þýðir að bíllinn er bráðskemmtilegur í akstri þrátt fyrir að hröðun sé kannski ekki sú mesta sem þekkist á rafbílamarkaðinum.
Hleðslugeta bílsins er um 100 kWst. í hraðhleðslustöð og má þá ná hleðslutíma niður í allt að 30 mínútum miðað við 80% hleðslu rafhlöðunnar.
Með 11 kWst. heimahleðslustöð tekur um fimm og hálfa klukkustund að hlaða bílinn upp í 80%.
Margar gerðir
Bílabúð Benna sem er umboðsaðili Opel á Íslandi býður bílinn í fjölmörgum útfærslum og á frábæru verði. Mokka e Edition er grunnútgáfa og hún er sérlega vel búinn. Þar má nefna árekstrarviðvörun með neyðarhemlun, fjórir hátalarar og sjö tommu margmiðlunarskjár með blátannarbúnaði.
Tímastillt miðstöð með loftkælingu sem hægt er að stýra í gegnum snjallsíma.
Varmadæla sem eykur skilvirkni miðstöðvar, rafmagnshandbremsa, skynvæddur hraðastillir, akreinavari og umferðamerkjaaðstoð, LED dagljósakerfi, regnskynjari í framrúði og þrjú aksturskerfi. Þau eru eco, normal og sport. Bíllinn er ágætlega snöggur og skemmtilegur í sport stillingunni en eyðir að sjálfsögðu mestri orku í þeirri stillingu.
Aðrar útgáfur eru Business Elegance sem kemur meðal annars með bakkmyndavél og leiðsögukerfi, GS Line Pack sem gerir bílinn ansi sportlegan og er með svörtum toppi.
Ultimate gerðin er sú með 12 tommu litaskjánum í mælaborði, alcantra leðuráklæði og þráðlausri hleðslu svo eitthvað sé nefnt.
Flott mælaborð
12 tommu mælaborðið er geggjað. Það samanstendur af stórum skjá sem mælaborðsskjá og öll grafík er toppflott og upplýsingamiðlun er einföld og skýr.
Ljúfur í akstri
Við vorum svo heppin hjá Bílablogg.is að fá að aka bílnum upp í Kjós og um Hvlafjörð, niður á Akranes og heim. Aksturseiginleikar bílsins komu vel fram í þeim túr. Stinn fjöðrun, nákvæmt stýri og góð sjónlína ökumanns eru það sem stendur uppúr.
Bíllinn liggur vel, leggst ekki í beygjurnar og er sérlega hljóðlátur í akstri – hvorki veg- né dekkjahljóð sem trufla.
Þú setur saman þinn eigin Mokka e
Reyndar er bíllinn alveg draumur í borginni, lipur og léttur og auðvelt að aka um þröngar götur og stræti. Þar á þessi bíll líka heima – sem ekta borgarbíll fyrir nútímafjölskyldu.
Einstakur sem annar bíll á heimili eða ungu hjónin með kornabarnið.
Útfærslur og verð ættu síðan ekki að koma í veg fyrir að þú finnir rétta Opel Mokka e sem passar þér.
Helstu tölur:
Verð frá kr. 3.990 þús. Reynsluakstursbíll Mokka e Ultimate 4.790 þús. (Tilboð í ágúst 2021).
Lengd (mm): 4151
Hæð (mm): 1532.
Breidd með spegla niðri / með spegla uppi (mm): 1987/1791.
Geymslupláss – aftursæti uppi: 350 lítrar.
Þyngd: 1598 kg.
Rafhlaða: 50 kWh (80% hleðsla á 30 mín með hraðhleðslustöð).
Hámarksafl: 100 kW, 136 hö.
Hámarkstog: 260 Nm.
Drægni: 324 km skv. WLTP.
Klipping myndbands: Dagur Jóhannsson