Renault veðjar miklu á Bigster
PARÍS – Luca de Meo, forstjóri Renault, horfir til minni gerða sportjeppa til að auka árangur samstæðunnar utan evrópskra markaða, með gerð fyrir Dacia, Lada og Renault vörumerkin sem gætu selst meira en 1 milljón eintökum árlega.
Sérstök gerð fyrir hvert vörumerki
Þrjú vörumerki munu hafa hvert sitt sérstaka útgáfu sem mun deila „85 prósentum“ íhluta, sagði de Meo í viðtali við Automotive News Europe.
Sportjeppinn verður byggður á endurbættri útgáfu af Renault-Nissan Alliance CMF-B grunninum, sem venjulega er notaður í smábíla eins og Renault Clio eða Dacia Sandero.
Dacia útgáfan, kölluð Bigster, mun beinast að íbúum í dreifbýli í Austur- og Vestur-Evrópu, sagði hann. Hugmyndaútgáfa var sýnd 14. janúar við kynningu á viðsnúningsáætlun sinni fyrir Renaulution fyrir bílaframleiðandann.
Meginatriði í áætlun de Meo er að draga úr því að treysta á litla bíla og færa „þungamiðju“ hópsins yfir í miðlungsstóra markaðshlutann, sem mun leiða til hærra verðs og hagnaðar. The Bigster verður fyrsti millistóri Dacia bíllinn; tvær mest seldu gerðir þeirra, Duster sportjeppinn og Sandero fólksbíllinn, eru báðir flokkaðir sem litlir bílar.
Sameina Lada og Dacia
Undir de Meo mun Renault Group sameina vörumerkin Lada og Dacia í eina rekstrareiningu sem deilir grunni og þróunarkostnaði.
Ráðgert er að Lada, rússneska vörumerki hópsins, fái tvær útgáfur af gerðinni, sem báðar munu bera nafnið Niva og minnir á litla jeppann sem við þekkjum svo vel hér á landi sem byrjaði á áttunda áratugnum (og er enn selt í Rússlandi sem Lada 4×4).
De Meo sagði að nýja Niva, sem búist er við að hafi svolítil útlitseinkenni frá gömlum tíma, eins og Renault 5, litli rafbíllinn sem er væntanlegur, hafi möguleika á að „kveikja“ á vörumerkinu í Rússlandi.
„Þetta verður eins og að vekja 500 til lífsins,“ sagði hann og vísaði til endurræsingar Fiat 500 bílsins sem var talinn hafa endurvakið Fiat-vörumerkið á fimmta áratug síðustu aldar, þegar de Meo var forstjóri Fiat.
Niva mun vera meira ætlaður til torfæruaksturs en Bigster, sagði De Meo.
“Okkar leið til að skilja vörumerkið var að ímynda Niva sem tæknilega vöru, eins konar tilgangshönnun fyrir miklar aðstæður, mikla notkun; svolítið eins og (Land Rover) Defender eða Suzuki Jimny,” sagði hann.
„Það mun hafa stuttar gírskiptingar, háa stöðu og mjög góða eiginleika fyrir notkun í torfærum“, bætti hann við. „Þetta er mjög einfaldur og hagnýtur bíll – við getum selt hann í Sviss, í Austurríki, til kaupanda sem á fjallaskála og þetta er eina leiðin til þess að hann komist þangað“.
„Við vitum að það er markaður“ í Evrópu fyrir Niva með þessi einkenni, sagði hann. „Þetta verða ekki 100.000 bílar en það verður arðbær markaður engu að síður“, bætti hann við.
Einnig verða til útgáfur af Renault vörumerki af bílnum sem verða seldar á mörkuðum utan Evrópu eins og Suður-Ameríku, þó að De Meo hafi ekki boðið upp á smáatriði nema að segja að „mikil aðgreining verði í hönnun.“
7 útgáfur, 3 tegundir
Hann sagði að það yrðu alls sjö útgáfur meðal merkjanna þriggja, framleiddar í fjórum verksmiðjum, þó að hann nefndi þær ekki.
Stefna De Meo er fágun á Global Access sviði samstæðunnar, þar sem margar útgáfur af sama farartækinu eru seldar undir mismunandi vörumerkjum á mismunandi mörkuðum. Duster, sem fyrst var þróaður af Dacia, er seldur í Evrópu sem Dacia, á mörkuðum utan Evrópu sem Renault og á Indlandi og öðrum Asíu mörkuðum sem Nissan Terrano. Það er til pallbílsútgáfa af Duster, seld sem Renault, fyrir Suður Ameríku.
Árið 2019 voru meira en 400.000 Duster-bílar seldir um allan heim, meðal allra vörumerkja, með framleiðslu í Rúmeníu, Rússlandi, Indlandi, Brasilíu og Kólumbíu. Sala árið 2020 var um 270.000 bílar.
De Meo sagði að Bigster gæti gagnast bæði Renault og Dacia vörumerkinu utan Evrópu. „Fyrir mér er Bigster einmitt bíllinn sem getur dregið Renault upp á alþjóðamörkuðum, þar sem við vorum aðeins að veðja á markaðshluta lítilla bíla“, sagði hann. “Svo nú get ég verið með miðlungsstóran sportjeppa sem er með betri nútímalegri tilvísun, hugsanlega betri ímynd og ná í nýja viðskiptavini”.
Betur búnir bílar frá Renault, gætu skapað pláss þar fyrir neðan svo Dacia komist á markaðinn, þannig að við höfum heildstæðara tilboð og leyfum Dacia að stækka á heimsvísu“.
(Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein