Rafmagn eða ekki rafmagn?
- Næsta kynslóð Porsche Cayman gæti orðið full rafknúin
- Porsche mun ákveða hvort Cayman og Boxster verði rafbílar í sumar
Porsche færist nær þeirri ákvörðun hvort skipta um 718 Boxster og 718 Cayman í hreint rafmagn – en yfirmaður fyrirtækisins segir að það þurfi enn „nokkra mánuði í viðbót“ áður en hann ákveður hvort þetta sé framkvæmanlegt.
Núverandi 982 útgáfur Boxster og Cayman voru kynntar árið 2016 og gert var ráð fyrir að nýjar kynslóðir yrðu líklegar árið 2023. Oliver Blume, yfirmaður Porsche, sagði við Auto Express haustið 2019 að fyrirtækið myndi ákveða „á næstu 12 mánuðum“ hvort skipta ætti bílunum úr brunahreyflum í rafmagn eða ekki.
Nú hefur Blume viðurkennt að ákvörðunin hafi enn ekki verið tekin en lýsti því yfir að hún verði tekin fyrir sumarið. Hann hefur einnig gefið sterklega í skyn að skipta yfir í rafmagn líti betur út en ekki. Eftir ársuppgjörsráðstefnu Porsche sagði Blume: „Það er tækifæri að við munum gera 718 rafmagnaðann en við erum enn þá á hugmyndatímabili þar sem við höfum ekki ákveðið þetta enn þá. Til að fara í rafmagn núna þurfum við rafhlöðuþróun í framtíðinni.
“Við munum bíða í nokkra mánuði í viðbót áður en við ákveðum hvaða hugmynd við munum nota. En ég held að það séu jákvæðir möguleikar til að gera þetta og þegar við gerum 718 rafmagnaðann ætti að vera hægt að keyra hann eins og 911 og alla aðra sportbíla. “
„Boxster og Cayman fá nýja kynslóð“
Blume sagði að þrátt fyrir að einhverjir aðrir framleiðendur færu út af litla úrvals sportbílamarkaðinum væru Boxster og Cayman viss um að fá nýja kynslóð, óháð því hvort hún er knúin áfram með brunavél eða rafmótorum. „Við munum halda áfram með módelsvið 718“, sagði hann. „Það er ljóst. Hvort það er brunavél eða rafmagn er ekki ákveðið enn þá”.
Porsche lítur greinilega á fulla rafvæðingu sem jákvætt skref fyrir framtíðar sportbíla, þar sem Blume segir: „Þú getur ekki borið brennsluvélar saman við rafmótora en það eru margir jákvæðir kostir rafvæðingar vegna höggsins og hröðunarinnar sem þú getur sett í bíll“.
Forstjóri Porshe viðurkenndi þó einnig að bensínvélar eigi enn sæti í framboði fyrirtækisins til skemmri og meðallangs tíma:
“Ég held að við þurfum báðar gerður næstu árin. Þess vegna höfum við sveigjanleika í vöruúrvali okkar til að halda áfram með 911 með brunavélum, til halda áfram með aðra bíla á brunavélum, til að framleiða blendinga með hærra rafmagnssvið – aðeins á rafhlöðum, til að kynna blendinga (hybrid) á 911; það eru enn þá margir möguleikar fyrir brennsluvélar.
„En þegar litið er til sjónarmiða um sjálfbærni, þá mun framtíðin til langs tíma vera rafknúin hreyfing og ég held að ökumenn sem þegar hafa ekið rafbílum séu mjög sannfærðir. Ég held að við getum sannfært samfélagið líka, sérstaklega eins og við gerðum með Taycan. Við hafa miklu fleiri hugmyndir fyrir framtíðarrafbíla okkar. Framtíðar rafbílar okkar eru 100 prósent Porsche“.
(frétt á vef Auto Express)
Umræður um þessa grein