Rafbíllinn Fiat 500 fær langdrægni og hraðhleðslu
MIÍLANÓ – Nýi Fiat 500 rafbíllinn sem eingöngu notar rafmagn frá rafhlöðum mun taka þátt í vaxandi fjölda rafknúinna smábíla sem miða að viðskiptavinum í borgum Evrópu sem leita losunarlausra lausna varðandi hreyfanleika.
Þriggja dyra hlaðbakurinn heldur fast í stíl núverandi Fiat 500 með brennsluvél sem var næst mest seldi smábíll Evrópu á síðasta ári eftir Fiat Panda.
Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum er rafmagns 500 með 320 km akstursdrægni og hann er knúinn af 87 kílówatta (116 hestafla) rafmótor og 42 kílówattstunda litíumjónarafhlöðu. Hámarkshraði bílsins er 150 km/klst.
Hægt að bæta við 50 km hleðslu á fimm mínútum
85 kW hleðslutækið getur bætt við 50 km við aksturssviðið á fimm mínútum og náð 80 prósent hleðslu á 35 mínútum, samkvæmt skýrslunum. Það tekur 6 klukkustundir að ná fullri hleðslu með 7,4 kW vegghleðslukassa.
Fiat er þegar farinn að taka pantanir í upphafsútgáfu rafmagns 500 sem kallast Prima, samkvæmt ítölsku blöðunum. 500 Prima kostar 37.900 evrur (um 5,4 milljónir króna) á Ítalíu. Fyrstu afhendingar fara fram í sumar og ódýrari útgáfur munu fylgja í kjölfarið.
Rafmagns 500 er aðeins stærri en bensínvélarbíllinn sem nú er til sölu. Hann er með 20 mm lengra hjólhaf, eða 2320 mm og er 60 mm lengri, eða 3631 mm, 60 mm breiðari, eða 1687 mm og 20 mm hærri, eða 1508 mm, samkvæmt gögnum sem fram hafa komið.
Hann er smíðaður á styrktri og breyttri útgáfu af smábílagrunni Fiat Chrysler Automobiles sem einnig er notaður fyrir Lancia Ypsilon og Fiat Panda, sem eru báðar fimm dyra módel en 500 er þriggja dyra. Núverandi 500 notar smábílagrunn FCA
Rafmagnsútgáfa Fiat 500 verður eingöngu seld í Evrópu.
Forframleiðsla er þegar hafin í Mirafiori verksmiðju Fiat í Tórínó og full framleiðsla hefst í júní.
Nokkrir keppinautar
Keppinautar rafmagns Fiat 500e munu verða rafhlöðudrifin útgáfa af Twingo smábílnum frá Renault, Twingo ZE, sem verður fáanlegur í lok þessa árs og rafbílnum frá dótturfyrirtæki Renault, Dacia, sem þegar hefur forsýnt fyrsta rafbílinn sinn, Spring.
Honda e mun fara í sölu í Evrópu í sumrin og gerir bílaframleiðdandinn ráð fyrir að selja um 10.000 bíla árlega á svæðinu. Volkswagen Group selur rafmagnsútgáfur af VW Up, Skoda Citigo og Seat Mii smábílunum sínum.
Fiat mun smám saman hætta í smábílaflokki í Evrópu til að reyna að færa viðskiptavini sína sem keypt hafa minnstu bílana yfir í arðbærari flokka, sagði forstjóri FCA, Mike Manley, í nóvember.
Fiat 500 með hefðbundinni bensínvél verður áfram til sölu „um nokkurra ára skeið“ með bensínvél og vægum blendingum (hybrid/tengitvinngerðir) með rafgeymum, samkvæmt Q ítalska bílavefnum Quattroruote.
Núverandi Fiat 500 er smíðaur í Póllandi. Sala í Evrópu lækkaði um 8,6 prósent í 164.648 bíla í fyrra, að sögn markaðsfræðinga JATO Dynamics.
Fyrsta kynslóð rafmagns 500 var smíðuð í Mexíkó og seldist aðeins í Bandaríkjunum til að uppfylla losunarreglur um núlllosunarbíla. Árið 2014 bað Sergio Marchionne, fyrrverandi forstjóri FCA, viðskiptavini um að kaupa ekki 500e vegna þess að fyrirtækið tapaði peningum í því.
Til stóð að afhjúpa nýja rafmagns 500 á aflýstu bílasýninguni í Genf í vikunni. Fiat mun afhjúpa bílinn í vefútsendingu frá hönnunarsafninu Triennale Design Museum í Mílanó.
Umræður um þessa grein