Rafbílar sem er hægt að fullhlaða á 10 mínútum, hvernig hljómar það?
Annars vegar virðast Samsung og Toyota (og fleiri) vera sammála um það að rafbílarafgeymar framtíðarinnar verði svokallaðar solid state rafhlöður. Hins vegar telja Tesla og Panasonic að framtíðin sé að þróa og endurbæta lithium-ion rafhlöður.
Rafgeymar í rafbílum eru lithium-ion sem þykja vera þungir og fyrirferðarmiklir.
Samsung telur að þeir geti framleitt solid state rafgeyma í framtíðinni sem gefa tvöfalda drægni á við það sem þekkist nú. Það byggist á því að það er hægt að koma tvöfalt meira magni af solid state rafgeymum fyrir í sama rými miðað við hefðbundna rafgeyma enda getur orkuþéttleiki (energy density) í solid state rafgeymi verið margfalt hærri. Orkuþéttleiki er sú orka sem rafgeymir getur gefið frá sér miðað við þyngd hans.
Solid state rafgeymir notast við rafkleyfa (electrolytes) í föstu formi en hefðbundnir rafgeymar í bílum notast við vökva eða gel. Solid state rafgeymar eru hinir einu sönnu þurrgeymar en það eru til rafgeymar sem eru kallaðir þurrgeymar en eru það ekki í raun.
Svona þurrgeymar eru ekki alveg nýir af nálinni í sögulegu tilliti en hjartagangráður er með rafhlöðu sem er solid state sem dæmi.
Það sem er nýjast í þessu er að geta fjöldaframleitt svona rafgeyma í rafbíla á hagkvæman hátt.
Flestir og þar með talið Toyota voru með áætlun um að það yrði hægt að nýta þessa tækni í fyrsta lagi árið 2025 en það virðist hafa breyst.
Nú áætlar Toyota að setja á götuna tilraunabíla (prototype) strax á árinu 2021og hefja framleiðslu fyrir 2025 að því er virðist.
Efnis-og íhlutaframleiðendur í Japan keppast við að setja upp aðstöðu til að framleiða rafkleyfa í þessa rafgeyma en Toyota er búið að tryggja sér yfir 1000 einkaleyfi varðandi solid state rafgeyma.
Þetta virðist allt ætla að gerast mun hraðar en gert var upphaflega ráð fyrir. Það eru góðar fréttir.
Toyota áætlar að það verði hægt að komast a.m.k. 500 km á einni hleðslu og það taki u.þ.b. 10 mínútur að hlaða svona tómann rafgeymi upp í fulla hleðslu.
Það ætti að verða minni eld- og mengunaráhætta með þessum rafgeymum.
Það er alveg möguleiki að það yrði hægt að skipta út lithium-ion og setja solid state rafgeyma í staðinn á eldri bílum.
Ef ég ætti að veðja á hvort verður framtíðin í rafbílum varðandi rafgeyma þá myndi ég veðja á solid state. En það verður fróðlegt að fylgjast með hvernig þetta þróast og það virðist allt vera á réttu róli hvort sem það verður fasta formið eða ekki.
Umræður um þessa grein