Porsche verður á Le Mans 2023
Porsche forsýnir bílinn sem verður merki um endurkomu þeirra í Le Mans-kappaksturinn
Stefnt er að því að bíllinn komi í keppnina árið 2023
Brotthvarf Porsche frá aðalkeppni alþjóðlegs þolkappaksturs í Le Mans var skammvinnt. Þeir ætla að snúa aftur á brautina árið 2023 með því að fara inn í LMDh flokk FIA og þar mað birti Porsche fyrstu opinberu myndirnar af bílnum sem þeir smíða til að halda áfram þar sem hinn afar farsæli 919 Hybrid hætti.
Þessi ónefnda gerð er hönnuð af Porsche og Penske með því að nota tækni sem er þróuð af Multimatic.
Bíllinn er fullkomlega felubúinn á myndum Porsche og framendinn er ekki sýndur, en það má sjá að hann er með miðlægum ugga sem hjálpar til við að halda uppi risastórum afturvæng, tvöföldum púströrum og þunnri ljósastöng að aftan sem líkist 911 bílnum.
Hann lítur út fyrir að vera breiður og lágur; það lítur heldur ekki út fyrir að bíllinn fái lánað útlit frá 919.
Auðvitað fylgir form virkni þegar við erum að tala um bíl sem er hannaður til að vinna hinn erfiða 24 stunda Le Mans þolakstur, meðal annarra keppna.
Það má giska á að hver hluti ytri hönnunarinnar hafi verið mótaður með ákveðinn tilgang í huga. Nánari upplýsingar verða gefnar út árið 2022.
Þó að opinberar tækniforskriftir séu ekki tiltækar, gefur reglubók LMDh flokksins okkur grunnatriðin.
Reglugerðir kveða á um að bílar þurfi að vega að minnsta kosti 1.030 kg og þeir verða að vera knúnir af bensín-rafmagns tvinndrifrás sem skilar ekki meira en 680 hestöflum.
Að minnsta kosti 630 af þessum hestum verða að koma úr bensínvélinni, þó þátttakendum sé frjálst að velja hvað þeir nota.
Porsche mun halda áfram að fínstilla frumgerðina á næstu mánuðum og áætlað er að frumraun hennar verði árið 2023.
Hún mun taka þátt í bæði World Endurance Championship FIA og IMSA WeatherTech SportsCar Championship, þökk sé nýrri reglugerð sem sameinar tæknilegar kröfur fyrir báðar keppnirnar. Acura, Audi, BMW og Cadillac ætla einnig að senda bíl á rásmark það árið.
Í millitíðinni mun þýska fyrirtækið keppa á World Endurance Championship 2022 tímabilinu með pari af 911 RSR gerðum. Fyrsta keppnin fer fram 18. mars á Sebring brautinni og mun tvíeykið taka þátt í 24 stunda Le Mans í júní næstkomandi.
(frétt á Autoblog)
Tengt myndband:
Kynning á 2021 Porsche 911 Turbo S
Umræður um þessa grein