Peugeot 2008 á toppinn í Evrópu
Peugeot 2008 skipar efsta sætið í sölu í Evrópu og VW Golf fellur út af topp 10 listanum
Verksmiðjustöðvun og forgangsröðun gerða ásamt vöntun á tölvukubbum er sögð vera ástæðan
PARÍS – skorturinn á tölvukubbum og hálfleiðurum hefur hrist upp í hefðbundinni röðun yfir mest seldu gerðir í Evrópu, en sigurvegarinn er óvæntur í október: Peugeot 2008.
Langhæsti sölubíllinn í heildina, Volkswagen Golf, var hvergi sjáanlegur á topp 10, samkvæmt tölum frá JATO Dynamics.
Bílaframleiðendur forgangsraða framleiðslu á gerðum með meiri framlegð og útblásturgildi meðan á skorti á íhlutum eins og tölvukubbum og hálfleiðurum stendur.
Það eru sportjeppar, sem geta fært framleiðandanum þúsundum evra hærra verð en jafngildur hlaðbakur eða fólksbíll, sem og raf- og tengitvinnbílar.
Það seldust aðeins 11.174 eintök af Golf í október, sem er 59 prósenta samdráttur frá október 2020.
Mest seldi bíll VW var T-Roc, í níunda sæti með 12.116 sölu.
Þetta var vegna framleiðslustöðvunar og samdráttar í hinni risastóru Wolfsburg verksmiðju VW, sem smíðar Golf. Framleiðsla í Wolfsburg hefur ekki verið minni síðan 1958, samkvæmt skýrslu í október.
Á eftir 2008 komu þrjár aðrar gerðir franskra bílaframleiðenda: Renault Clio, Dacia Sandero og Peugeot 208. Athyglisvert er að 2008 landaði ekki fyrsta sætinu í Frakklandi í október og endaði í fjórða sæti.
Þann heiður hlaut Peugeot 208.
Aðeins ein önnur gerð í topp 10 sýndi aukningu í október; Fiat 500, sem hefur fengið einhverja endurreisn á þessu ári með því að bæta við New 500 full-rafmagnaða bílnum.
Í október seldust 12.555 Fiat 500 bílar, sem er 12 prósenta aukning frá október 2020 og nógu gott fyrir sjötta sætið í heildina.
Of snemmt að fagna mikið
Peugeot og Fiat ættu þó ekki að fagna of mikið, sérstaklega ef skorturinn á íhlutunum minnkar. Golf var áfram í 1. sæti í heildina við lok október, með 186.444 sölu.
Það var 22.000 eintökum á undan Toyota Yaris númer 2 þrátt fyrir að Golf hafi tapað 18 prósentum miðað við janúar-október 2020. 2008 er í fimmta sæti og Fiat 500 í því tíunda.
(Automotive News Europe)
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein