Það er eins gott að hafa húmor fyrir sjálfum sér og eiga nóg af peningum þegar 15 milljón dollara (tveggja milljarða króna) kaggi er næstum skemmdur vegna klaufsku manns sjálfs!

Það var einmitt raunin í tilviki Frakkans François Perrodo, kappakstursökumanns og stjórnarformanns olíufyrirtækisins Perenco. Hann er einn eigenda þess stóra fyrirtækis en það er með starfsemi í 16 löndum.
Hefði ekki gerst í Frakklandi
Það var í sunnudagsbíltúr með félögunum sem honum urðu á þessi agalegu mistök. Hann dældi dísil í stað bensíns á bílinn. Bíllinn er þessi líka svakalegi McLaren F1 GTR sem metinn er á 15 milljónir dollara.

François deildi sögunni af þessum ósköpum á Instagram og gerði grín að eigin klaufaskap:
„Eftir 25 ára feril sem algjör bílakarl gerði ég einhver aulalegustu mistök sem hægt er að gera,“ skrifaði hann og útskýrði í hverju mistökin fólust. Bætti svo við. „Hefði þetta verið venjulegur bíll hefði dælustúturinn fyrir það fyrsta aldrei passað en GTR-inn er kappakstursbíll [götuskráður] með stóru opi! Í öðru lagi; hefðum við verið í Frakklandi þá hefði dælubyssan verið bæði ógeðsleg og illþefjandi en þetta gerðist í London og hún var eins hrein og þurr og bensíndælubyssa!“

Hann skrifaði að vinir hans gerðu nú óspart grín að honum en þeir límdu límmiðann, sem sjá má hér efst, á bensínlokið á bílnum hans eftir óhappið. „Meira að segja hundurinn hlær að mér þegar ég kem heim,“ skrifaði olíustjórinn og ökuþórinn en hann hefur m.a. keppt í 24 Hours of Le Mans, V de V Series og Blancpain GT Series Endurance Cup.
Fullur bensíntankur af dísil
Það leið ekki á löngu eftir „bensín“stoppið þar til bíllinn fór að láta undarlega og François gat ekkert tjónkað við hann. Hann hélt að bíllinn væri bara með einhverjar tiktúrur og almenna dynti (svona eins og tveggja milljarða króna ökutæki eiga til…) en nei, það var eitthvað undarlegt við bílinn sem hann kom ekki einu sinni í gang eftir að hann stoppaði loks.

Þeir eru ekki margir bifvélavirkjarnir sem hafa þekkingu og réttindi til að krukka í McLaren F1 og þaðan af síður F1 GTR. François var svo lánsamur að ná í Paul Lanzante hjá Lanzante Motorsport. Lanzante vann einmitt 24 Hours of Le Mans árið 1995 á nákvæmlega svona bíl. En viti menn; Lazante kom bílnum ekki heldur í gang.

Það var þá sem olíubaróninn áttaði sig á eigin mistökum: Tankurinn var fullur af dísil. Sem betur fer skemmdi þetta ekki bílinn og François Perrodo gat hlegið að þessum mistökum sínum eftir að búið var að koma hlutunum í lag.

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein