Nýr XPeng er fjölskyldbíll með öllu sem þú þarft

Tegund: XPeng G6

Árgerð: 2025

Orkugjafi: Rafmagn

Aksturseiginleikar, tækni, hönnun, verð
Stuttar setur í framsætum
173
DEILINGAR
1.6k
SMELLIR

Nýi XPeng G6 rafmagnsbíllinn hefur vakið mikla athygli með framúraskarandi hæfni sinni og tækniþáttum. Með drægni upp á 550 km skv. WLTP staðlinum er hann bíll sem getur fullnægt þörfum flestra, hvort sem um er að ræða borgarakstur eða lengri ferðir.

Virkilega falleg lína í nýjum XPeng G6

Fæst í þremur útgáfum

XPeng G6 er í boði í bæði aftur- og fjórhjóladrifnum útgáfum. Bíllinn sem við prófuðum var í Performance útgáfu með um 470 hestöfl og togkraft upp á 660 Nm. Í akstri var þetta sambland af krafti og jafnvægi sem stóð fyllilega undir væntingum.

Hreyfingar bílsins jöfnuðust á við það besta sem við eigum að venjast í bílum með hefðbundnum brunavélum.

XPeng hefur heldur betur vakið athygli hér á landi eftir að bílaumboðið Una hóf kynningu á bílnum.

Nýjasta rafhlöðutækni

Bíllinn er búinn 800V rafkerfi sem styður 280 kWh hraðhleðslu og getur hlaðið úr 10-80% á innan við 20 mínútum við réttar aðstæður. Rafmótorarnir virka vel og þeir skila bílnum fínum togkrafti strax við átak.

Auk þess er hægt að velja á milli akstursstillinga sem miða að þægilegum hefðbundnum akstri, sportlegri eiginleikum eða orkusparandi aksturs.

Rafdrifinn afturhleri í XPeng G6 Performance

Aðgerðarhnappar í stýri

Mælaborð er skýrt og einfalt en það eru engir takkar til að fikta í. Þú gætir þurft smá tíma til að venjast því.

Þetta er einn af fáum bílum sem undirritaður hefur notað raddstýringu sem virkar því Mrs. XPeng skildi ávallt það sem ég óskaði eftir. Til dæmis að opna gluggan að einum þriðja – ekkert mál. Blástu heitu á mig. Mér er kalt og hringdu í Magga bróðir.

Þú þarft sem sagt ekki próf úr Oxford háskóla í ensku til að XPeng raddstýrikerfið skilji þig. Í stýrinu getur þú svo stillt aðgerðarhnappana eftir þínu höfði og þeir hafa fjölvirka stýringu.

Skjáir eru vel upp settir, einfaldir aflestrar og hjálpa til við aksturinn.

Venjulega getur þú hækkað í miðstöðinni með hægri snúningstakkanum en svo þegar skyndvæddi hraðastillirinn er á virkar takkinn fyrir hana.

Mjúkur og heldur utan um mann

Fjöðrunin er mjúk og virkar vel fyrir mismunandi aðstæður. Við ókum bílnum í frekar blautu veðri þar sem hann fékk að kynnast snjó á milli akreina og bleytu á leið frá Reykjavík til Keflavíkur.

Við fundum aðeins fyrir snjónum milli akreina, að öðru leyti var aksturinn hinn þægilegasti.  

Akstursöryggið er á hæsta stigi, þar sem bíllinn er búinn fullkomnum akstursöryggiskerfum eins og akreinastýringu og skynvæddum hraðastilli og bíllinn skiptir sjálfur um akrein með aðstoð XPilot 2.5 kerfis XPeng. Einnig er hliðarárekstaravörn, neyðarhemlun, vöktunarkerfi ökumanns og blindhornaviðvörun.

Þú getur valið um tvo liti á innanrými, grátt og svart.

Panorama glerþak

Nýstárleg tækni

Hugmyndafræði XPeng G6 snýr að snjöllum lausnum. Boðið er upp á þráðlausa tengingu við Apple CarPlay og Android Auto og það er einhvernveginn átakalaust að stilla tækin saman.  

Myndavélakerfið samanstendur af 11 myndavélum sem veita góða yfirsýn og eykur öryggi í akstri. Þegar þú gefur stefnuljós kemur stór mynd á skjáinn sem sýnir til hliðar við bílinn í þá átt sem beygt er.

Fótapláss aftur í er með eindæmum gott og höfuðpláss einnig. Gott að ganga um bílinn, þú sest inn í hann en ekki ofan í.

Flottur að innan

Hönnun innanrýmis hefur tekist mjög vel í þessum bíl. Rúmgóð innréttingin með þægilegu aðgengi er með gott pláss fyrir alla fjóra farþega bílsins og ökumann.

Sætin eru með gervileðri sem reyndar flestir bílar í þessum flokki eru búnir í dag. Spurningin er þessi: hvernig er endingin, hvernig lítur svona bíll út að innan eftir 6 ár til dæmis?

XPeng G6 kemur með háuljósaaðstoð.

Það eina sem við gátum fundið að þessum bíl er að seturnar í framsætum mættu ná betur undir hnésbætur.

Nægt pláss

Farangursrýmið er nokkuð rúmgott eða um 571 lítri og stækkanlegt í rúmlega 1370 lítra. Afturhlerinn er rafdrifinn og auðvelt er að ganga um bílinn. Þú sest inn í bílinn en ekki niður í hann. Bíllinn er þéttur og vel hljóðeinangraður.

Ekki er meira veghljóð inn í þennan bíl en til dæmis Volkswagen ID.5 eða nýjan Ford Explorer rafbílinn. Minna ef eitthvað er.

Skottrými er ágætt eða um 571 lítri og um 1370 lítrar með sætin niðurfelld

Eftirtektarverður árangur

Það liggur í augum uppi að með hverjum nýjum bíl frá iðnaðarstórveldinu Kína styrkist sú trú manns að þeir eru að breyta bílaheiminum. Með hátækni og evrópskri þekkingu eru þeir hreinlega að valta yfir evrópska framleiðendur.

Sú tækni og búnaður sem sést í bíl sem kostar um sjö milljónir er ekki möguleiki að finna í evrópubíl – nema með talsverðum aukakostnaði.

Þetta er ekki lengur spurning um gæði. Þau eru til staðar.

Margir velja XPeng

XPeng G6 er sá söluhæsti hjá bílaumboðinu Unu en talsvert erum nýja svona bíla í umferð og fleiri á leiðinni. Enda vel heppnaður fjölskyldubíll á ferð með nægu plássi, góðum aksturseiginleikum og prýðilega fallegur bíll. 

Þessi bíll hentar fólki á ferð og flugi, fjölskyldum, hjónum á miðjum aldri sem vilja nægt pláss fyrir farangur og hluti í sumarbústaðinn eða útivistarfólkið sem vill taka með sér hjólið, kajakinn eða slatta af farangri. Pottþétt tveggja golfsetta bíll.

Myndband

Helstu tölur:

Verð: 5.990.000 kr. – 6.990.000 kr. með orkustyrk. Verð á reynsluakstursbíl 6.990.000 kr. með orkustyrk.

Orkugjafi: Rafmagn

Afl: 470 hö.

Tog: 660 Nm.

Eyðsla: 17.9 kWh/100 km.

Rafhlaða: 84 kWh. (nýtanlegt)

Farangursrými: 571/1374 lítrar

Drægni: 550 km WLTP staðli

Drif: AWD

Lengd/breidd/hæð – mm: 4.753/1.920/1.650

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar