Nýr Volkswagen Arteon „Shooting Brake“ komin fram á teikningu
• Nýr Volkswagen stationbíll verður afhjúpaður þann 24. júní samhliða uppfærðum „fastback“
Volkswagen hefur opinberað nýjan stationbíl undir því sérskennilega heiti „Arteon Shooting Brake“ á teikningu áður en afhjúpun framleiðslugerðarinnar verður þann 24. júní næstkomandi.
Stationbílnum verður hleypt af stokkunum á sama tíma og uppfærð útgáfa af gerðinni sem hún byggir á, Arteon fastback, sem einnig er sýnd á teikningu. Klaus Bischoff, stjóri hönnunar Volkswagen Group, sagði: „Með Arteon Shooting Brake höfum við skapað nýtt jafnvægi milli hraða, afls og rýmis.“
Kynning á bílnum í Arteon línunni er djörf ákvörðun hjá Volkswagen þar sem margir bílaframleiðendur íhuga hvort jafnvel hefðbundnir fólksbílar séu lengur mikilvægir í framboði þeirra, í ljósi vaxandi vinsælda jeppa. Til dæmis er nýi Lexus IS-fólksbíllinn ekki ætlaður Evrópu eða Bretlandi.
Auk nýja Arteon stationbílsins og hönnunarbreytingum á Arteon „fastback“ segir Volkswagen að framboðið fái „víðtæka uppfærslu… með nýjum hátæknibúnaði og skynvæddu þæginda- og aðstoðarkerfi“.
Innréttingin mun fá alveg nýjan stjórnklefa, þar með talið nýjasta upplýsinga- og afþreyingarkerfið sem lofar „bestu mögulegu tengingu“.
Volkswagen segir að allar vélarnar séu „með mikil afköst auk lítillar losunar og öflugt tog. Þessari hámarksnýtni er náð með nýstárlegri, framtíðartengdri vél og losunartækni. “
Arteon verður líklega fáanlegur með 2,0 lítra turbóbensín- og dísilvalkostunum sem boðið er upp á í fólksbílnum, en með 48V mildum blendingarkerfi sem bætt er við. Sportlegri útgáfa frá R-deild Volkswagen mun koma síðar, knúin áfram af 329 hestafla vél, kunnuglegri EA888 2,0 lítra fjögurra strokka túrbóbensínvél.
Hið nýja Arteon tvíeyki mun einnig kynna til sögunnar snjallari stoðkerfi. Travel Assist er hannað með langar ferðir í huga og mun „taka við stýri, hröðun og hemlun upp að 200 km/klst hraða undir stjórn ökumanns“
Umræður um þessa grein