Nýr sportlegri Golf á leiðinni?
Sportlegri Volkswagen Golf er í smíðum og gæti setið fyrir ofan GTI Clubsport og R
Það lítur út fyrir að enn öflugri og sportlegri útgáfa af VW Golf sé á leiðinni.
Volkswagen hefur sent frá sér kynningarmynd af væntanlegri, sportlegri útgáfu af áttundu kynslóðinni af Golf, sem gæti verið enn sprækari en núverandi gerðir GTI Clubsport og R-gerðin.
Enn sem komið er eru upplýsingar af skornum skammti, en bíllinn á myndinni er með vindskeið að aftan frá Golf GTI Clubsport og R sem er búinn Performance Pack og framstuðarinn lítur út fyrir að vera fenginn að láni frá fjórhjóladrifna R-bílnum, sem bendir til þess að þetta gæti verið enn sprækari útgáfa af 316 hestafla gerðinni.
Þessi nýi bíll gæti annað hvort verið GTI Clubsport S eða R Clubsport, sá síðarnefndi yrði sá fyrsti, og í tæka tíð fyrir 20 ára afmæli forföður Golf R: Mk4 Golf R32.
Aflið kemur væntanlega frá EA888 mótor Volkswagen, en 2,0 lítra túrbóeiningin skilar meira en 300 hestöflum. Á vefsíðum er því jafnvel slegið fram að Volkswagen gæti fjarlægt aftursætin til að spara þyngd, eins og þeir gerðu með Mk7 GTI Clubsport S.
Þessi nýi öflugi Golf verður væntanlega sýndur að fullu á næstu vikum og mun líklega kosta um sjö milljónir króna á Evrópumarkaði.
Umræður um þessa grein