Nýr Skoda Enyaq iV SportLine bætist við í framboði rafdrifna sportjeppans
- SportLine útlit hins rafknúna Skoda Enyaq iV bætir við sportlegra útliti, stærri felgum og fleiri útlitsatriðum
Skoda hefur bætt við nýju SportLine útliti í Enyaq iV rafknúna sportjeppanum sínum, sem aðeins notar rafhlöður, með lægri og sportlegri undirvagni, 20 tommu álfelgum og nóg af svörtum útlitsatriðum.
Gljáandi skrautlisti er um grillið, svart undirstrikar stuðara að framan og aftan, hús hliðarspegla, gluggalínur, merkið og vindskeið að aftan.
Að innan fær Skoda Enyaq iV SportLine par af nýjum sætum sem bjóða upp á meiri stuðning, þriggja pílára fjölvirkt stýri og kolefnatrefjar í innréttingunni.
Lægri undirvagn
SportLine undirvagninn hefur verið lækkaður um 15 mm að framan og 10 mm að aftan, þannig að þó að hann sé ekki fullkomin útfærsla hraðakstursbíls, þá ætti þetta að lækka þyngdarpunkt Enyaq til að fá aðeins betri aksturseiginleika.
Þetta nýja stig búnaðar verður fáanlegt með vali tveggja aflrása, frá Enyaq iV 80, sem státar af 201 hestafla rafmótor. Þar sem bíllinn er byggður á MEB grunni VW Group fyrir rafknúin ökutæki, nær hann með afturhjólum í 0-100 km/klst á 8,5 sekúndum en Enyaq iV 80 mun bjóða upp á allt að 520 kílómetra aksturssviði (WLTP).
Tveir rafmótorar = aldrif
Kaupendur sem vilja meiri afköst geta valið Enyaq iV 80x, sem er með tveimur rafmótorum fyrir aldrif, sem býður upp á alls 261 hestafl og togið er 425 Nm. Skoda fullyrðir að drægnin sé um 520 km á milli þess að það þurfi að hlaða.
Báðar gerðirnar eru með 82kWh litíumjón rafhlöðu, þar af 77kWh eru nothæf, sem hægt er að endurhlaða á 13 klukkustundum frá 7,2kWhleðslutengi í heimahúsi. Ólíkt öðrum búnaðarstigum Enyaq iV verður SportLine ekki fáanlegur með minni 58kWh rafhlöðunni.
Enyaq SportLine fær stærri álfelgur og LED framljós eru staðalbúnaður.
Skoda á ennþá eftir að tilkynna verðlagningu á nýja Enyaq iV SportLine.
Umræður um þessa grein