Nýr Range Rover Sport sýndi við Kárahnjúka hvers hann er megnugur
Jaguar Land Rover frumsýndi síðdegis í gær, þriðjudag, nýja og endurhannaða útgáfu af hinum geysikraftmikla Range Rover Sport sem streymt var á netinu um víða veröld.
Frumsýningunni fylgdi kynningarmyndband sem eflaust kom mörgum hér á landi skemmtilega á óvart því þar tókst ökuþórinn Jessica Hawkins, á við Hafrahvammagljúfur í kapphlaupi við tímann áður en vatnsborðið hækkaði of mikið enda Hálslón komið á yfirfall.
Þess má geta að Ísland var á meðal ýmissa kosta sem til greina komu fyrir gerð myndbandsins, en það var fyrsta val stjórnenda hjá Land Rover.
Myndir: BL/Land Rover
Umræður um þessa grein