Nýr rafmagnssendibíll frá CITROËN KOMINN Í FORSÖLU
Brimborg kynnir glænýjan, langdrægan Citroën ë-Jumpy 100% hreinan rafmagnssendibíl sem væntanlegur er til landsins í apríl og mun Brimborg bjóða hann í tveimur lengdum með 7 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.
Forsalan á nýja rafsendibílnum er nú þegar hafin í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg.
ALLT AÐ 330 KM DRÆGNI Á 100% HREINU RAFMAGNI
Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíll er 100% hreinn rafbíll með 50-75 kWh drifrafhlöðu. Drægni bílsins skv. WLTP mælingu er framúrskarandi eða allt að 330 km. Citroën ë-Jumpy er fáanlegur með eins fasa 7,4 kW eða þriggja fasa 11 kW innbyggðri hleðslustýringu.
HRAÐHLEÐSLA Í 80% DRÆGNI FRÁ AÐEINS 32-48 MÍNÚTUM
Það er einfalt og fljótlegt að hlaða Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíl heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum. Hægt er að fullhlaða drifrafhlöðuna á 4:45 – 7:30 klukkustundum í öflugri heimahleðslustöð og næstum tóma drifrafhlöðuna má hlaða á 32-48 mínútum í 80% drægni í 100 kW hraðhleðslustöð.
FJARSTÝRÐ FORHITUN TRYGGIR ALLTAF HEITAN BÍL
Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíll er með fjarstýrðri forhitun sem tryggir að bíllinn er heitur og þægilegur þegar lagt er af stað. Einfalt er að tímasetja, stöðva og virkja hleðslu í MyCitroën® appinu ásamt því að fjarstýra forhitun.
RÍKULEGUR STAÐAL- OG ÖRYGGISBÚNAÐUR
Citroën ë-Jumpy er ríkulega búinn. Meðal ríkulegs staðal-og öryggisbúnaðar er bakkmyndavél með 180° víddarsýn, nálægðarskynjarar að framan og aftan, blindpunktsaðvörun, hraðastillir, öryggispúðar að framan og í hliðum, Bluetooth símabúnaður, ökumannssæti með armpúða, 7? margmiðlunarskjár í mælaborði, varadekk og fjarstýrð forhitun. Citroën ë-Jumpy er með heilu þili milli hleðslurýmis og farþegarýmis með glugga og 180° opnun á afturhurðum. Citroën ë-Jumpy er fáanlegur með ýmsum aukabúnaði t.d með krossvið í gólfi hleðslurýmis og með rennihurð á báðum hliðum.
MODUWORK – FELLANLEGT SÆTI OG LÚGA Á ÞILI TIL AÐ FLYTJA LENGRI HLUTI
Með Moduwork innréttingunni í Citroën ë-Jumpy er hægt að stækka hleðslurýmið með opnanlegri lúgu og niðurfellanlegu framsæti, hægt er að flytja allt að 4,026 m langa hluti með Moduwork innréttingunni.
ALLT AÐ 6,6 M3 HLEÐSLURÝMI
Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíll er fáanlegur í tveimur lengdum; millilangur og langur. Rúmmál hleðslurýmis er allt að 6,6 m3 með Moduwork innréttingingu, fellanlegu sæti og lúgu á þili til að flytja lengri hluti.
ÖRUGG GÆÐI CITROËN ERU STAÐFEST MEÐ 7 ÁRA VÍÐTÆKRI ÁBYRGÐ Á BÍL OG 8 ÁR Á DRIFRAFHLÖÐU
Örugg gæði Citroën ë-Jumpy eru einstök enda í boði með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og sérstakri 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðenda.
FORSALAN ER HAFIN Í VEFSÝNINGARSAL BRIMBORGAR
Brimborg hefur hafið forsölu á glænýjum Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíl í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg. Sýningar- og reynsluakstursbílar verða hjá Brimborg í apríl og afhendingar til kaupenda hefjast í maí 2021.
Í Vefsýningarsal er að finna alla Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíla í pöntun. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Brimborgar.
Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíll kostar frá 5.190.000 kr. og er fáanlegur í tveimur lengdum; millilangur og langur.
Brimborg hefur lagt sífellt meiri áherslu á forpöntun nýrra bíla sem hefur gert það að verkum að bílverð lækkar vegna lægri birgðakostnaðar og á sama tíma geta kaupendur hannað bílana nákvæmlega að sínum óskum hvað varðar lit, innréttingu og búnað. Söluráðgjafar Citroën aðstoða viðskiptavini við að setja saman réttu útfærsluna.
Nánari upplýsingar um glænýjan Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíl er að finna á vef Citroën á Íslandi citroen.is eða hjá sölustjóra Citroën á Íslandi, Benný Ósk Harðardóttur eða í síma 5157802.
Umræður um þessa grein