Nýr Volkswagen Passat 2023 mun bjóða upp á meira pláss en nokkru sinni fyrr
Talið er ólíklegt að næsta kynslóð Volkswagen Passat verði í boði sem hefðbundinn fólksbíll, þar sem nýja gerðin verður fáanleg stationgerð eða sem hlaðbakur
James Brodie hjá vefsíðu Auto Express í Englandi segir að Volkswagen Passat muni öðlast nýtt líf árið 2023, eftir að þýska fyrirtækið gaf grænt ljós á kynningu á nýrri B9 kynslóð bílsins.
Nýi bíllinn verður smíðaður í Bratislava samhliða Touareg jeppanum, þó hann muni halda áfram að nota MQB grunn vörumerkisins.
Að lokum mun Passat deila sömu framleiðslulínu og næsta kynslóð Skoda Superb, sem verið er að þróa samhliða þessari nýju gerð af Passat.
Þessi vinsæli fjölskyldubíll VW hefur verið fluttur frá hefðbundnu heimili sínu í Emden í Þýskalandi til að rýma fyrir ID.4 jeppanum og framleiðsluútgáfunum af ID. Vizzion fólksbílnum og ID. Space Vizzion stationbílnum.
Samkvæmt því sem fram kemur hjá Auto Express verður nýi Passat boðinn sem rúmgóður stationbíll eða hagnýtari hlaðbakur í stað núverandi fólksbíls.
Sérstakar myndir Auto Express gefa innsýn í það hvernig næsta kynslóð Estate gæti litið út.
Fjölhæfni og hagkvæmni verða forgangsverkefni nýju gerðarinnar þannig að hún verður aðeins frábrugðin VW Arteon, sem er í svipaðri stærð. Nýjasta gerð Golf station hefur aukna getu til að keppa við núverandi Passat station, þannig að hinn síðarnefndi er að finna fyrir þrýstingi að ofan og neðan í VW-liðinu.
Lengra hjólhaf
Hjólhaf Passat mun líklega teygja sig í svipaða lengd og hjá Skoda Superb, eða 2,85 metra.
Þó að það ætti að skila sér í meira fótarými fyrir farþega í aftursætinu, þá mun aukalengdin einnig ganga í átt að því að bæta farangursrýmið og gefa Passat nýjan sess sem hagnýtasti bíll vörumerkisins sem ekki er jeppi eða atvinnubíll.
Komið verður til móts við þá sem vilja bíl í þessari stærð sem aðeins notar rafmagn með væntanlegri framleiðsluútgáfu ID. Space Vizzion, svo Passat geti haldið áfram að uppfylla þarfir kaupenda sem vilja hefðbundinn aflgjafa.
Dísilvélar eru áfram til staðar
Vinsældir dísilbíla í þessum flokki hafa minnkað undanfarin ár en Passat mun halda áfram með TDI valkosti. Nýjasta útgáfan af 2.0 TDI túrbó-vélinni mun verða undir vélarhlífinni, í takt við allt frá 148 hestöflum til 197 hestafla, en 4MOTION fjórhjóladrif verður einnig fáanlegt.
Bensínvélar munu einnig verða með en sú útgáfa verður mikilvæg brú í átt að auknu framboði tengitvinnbíla með tveimur möguleikum í boði.
Grunngerð eHybrid gerðarinnar mun verða í kringum 200 hestöfl, en líklega mun 242 hestafla GTE líkan fara í sölu, með stærri rafhlöðu en 13kWst einingin sem notuð er í núverandi Passat GTE.
Það myndi gera mun lengra rafknúið aksturssvið mögulegt, allt að 100 kílómetrum.
Samsvörun stærri pakkans væri bætt tækni við hleðslu, með því að fara úr 3,6kW í 11kW riðstraumshleðslu.
(Frétt á Auto Express)
Umræður um þessa grein