Nýr Kia Ceed, flottur fjölskyldubíll
Við tókum góðan bíltur á dögunum á nýjum Kia Ceed. 2019 árgerðin af Kia Ceed er sú þriðja sem Kia kynnir frá árinu 2006. Bíllinn er snotur og býr yfir mörgu af því besta sem bílar í þessum flokki eru búnir í dag. Reyndar hefur Kia ávallt búið bíla sína vel og jafnvel með meiri búnaði en samkeppnisaðilar hafa geta státað af.
Við fyrstu sýn er nýi Kia Ceed bíllinn alls ekki ólíkur öðrum hlaðbökum á markaðnum. Keimlíkur nýjum Ford Focus og Toyota Corolla er gaman að bera þessa bíla saman að einhverju leiti en við hjá Bílablogg.is höfum einmitt reynsluekið bæði nýjum Ford Focus og Toyota Corolla 2019.
Nýjar bensínvélar
Nýi Kia Ceed bílinn er frábrugðinn fyrri útgáfum hvað framboð véla varðar. Nú er bíllinn aðeins boðinn með bensínvélum en ekki sparneytnu díselvélunum eins og áður. Ódýrasta útgáfa Kia Ceed er af Kappa gerð og er hann með 1.0 lítra vél, 6 gíra beinskiptingu sem skilar 120 hestöflum. Ceed X er síðan næsta týpa fyrir ofan Kappa og er hann fáanlegur með 1.4 lítra öflugri bensínvél með 6 gíra beinskiptingu eða 7 gíra sjálfskiptingu og er sá bíll að skila 140 hestöflum. Eyðslan er frá 5.5 lítrum á hverja 100km. með minni vélinni og 5.7 lítrar á hverja 100 km. með þeirri stærri. EX bíllinn er sá bíll sem við prófuðum og var hann sérlega vel búinn, 1.4 lítra vél, sjálfskiptur, 140 hestöfl og sérlega ríkulega búinn.
Það var smá rigningarsuddi þegar við tókum við bílnum hjá Kia umboðinu á Krókhálsi og við ákváðum að skella okkur austur á Nesjavelli og sjá hvernig bíllinn reyndist á misgóðum mjóum veginum áleiðis austur. Byrjuðum á því að stilla sætin og renna í gegnum búnað bílsins. 8 tommu upplýsingaskjárinn er einfaldur og auðveldur í notkun. Hæðarstilling er á framsætum en undirrituðum fannst að í bíl í þessum klassa hefði hliðarstuðningur sætis setunnar mátt vera örlítið stinnari og einnig stuðningur til hliðanna í sætisbakinu. Í beygjum á hlykkjóttum veginum austur á Nesjavelli var rann maður fullmikið til í sætinu í beygjum enda bíllinn kraftmikill.
Annars er innréttingin glæsileg og hægt að velja um nokkrar útfærslur og meðal annars leðurstæti. Ceed er rúmgóð frammí og gott pláss í aftursætum bæði höfuð- og axlarrými. Skottið er eins og gerist og gengur í bílum í þessum stærðarflokki, hvorki meira né minna.
Android Auto og Apple Carplay
Mælaborðið er mjög vel uppsett og 4.2 tommu upplýsingaskjár í miðju hans gefur manni allar upplýsingar sem maður þarf á að halda úr upplýsingakerfi bílsins. Kia Ceed er ríkulega búinn nýrri tækni sem hefur verið að ryðja sér til rúms í dýrari gerðum bíla á undanförnum árum en farin er að sjást í minni gerðum bíla. Akreinavari, upplýsingar um hraðatakmarkanir, athyglisvari sem fylgist með stýrishreyfingum, notkun stefnuljósa og mynstri í hröðun. Við sem vorum að reynsluaka fengum tvisvar aðvörun frá þessu kerfi enda vegurinn hlykkjótur og í hæðum og lægðum.
Kian er með árekstarvara að framan sem virkar þannig að skynjari og myndavél gefa aðvörun með ljósi í mælaborð og viðvörun í stýri. Ef ökumaður bregst ekki við beitir búnaðurinn hemlakerfinu til að bregðast við aðstæðum.
Snjall bíll
Það má með sanni segja að nýr Kia Ceed sé snjall bíll. Öryggiskerfið er öflugt og gerir aksturinn bæði ánægjulegri og öruggari. Þó við höfum ekki ekið bílnum í myrkri kynntum við okkur ljósabúnaðinn vel. Bíllinn er búinn svokölluðum Ice Cube LED, dagljósabúnaði sem virkar þannig að myndavél á framrúðinni skynjar bíl á móti slökknar sjálfkrafa á háu ljósunum og lágu ljósin taka við. Frábær eiginleiki sem eykur öryggi og kemur í veg fyrir að ökumaðurinn þurfi sjálfur að meta hvenær sé nú rétt að bregða birtu.
Bakkmyndavélin er kýrskýr og með beygjuhjálp. Tvær aksturstillingar eru í boði í SPORT og NORMAL. Við prófuðum bílinn í báðum aksturstillingum og í sport stillingunni breytast aksturseiginleikarnir og bíllinn verður stinnari í fjöðrun og næmari í stýri. Akstursstillingin er aðeins í boði í sjálfskipta bílnum.
EX bílinn er með rafmagnshandbremsu, búinn mjög fullkominni bílastæðisaðstoð og þú gerir í raun ekkert annað en að stjórna inngjöf og gírskiptingu en bíllinn stýrir inn og út úr stæði.
Skemmtilegur bíll
Í heild er nýji Kia Ceed bíllinn skemmtilegur bíll á hagvæmu verði en reynsluakstursbíllinn kostar nú (í ágúst mánuði 2019) um fjórar og hálfa milljón sem er svipað og samkeppnin býður uppá miðað við sambærilegan búnað. Bílinn er sérlega lipur, hljóðlátur með eindæmum og sjálfskiptingin þannig að þú varla tekur eftir því að bíllinn skipti sér. Fjöldinn allur af tengimöguleikum er í bílnum eins og AUX tengi, USB tengi og 12 V tengi. Þráðlaus símahleðsla er í EX bílnum. Ceedinn er einnig búinn 40:20:40 niðurfellanlegum aftursætum og ISOFIX festingum fyrir barnabílstólinn.
Kia umboðið býður upp á 7 ára ábyrgð á öllum Kia bílum. Kia Ceed er til í tug lita og má þar nefna Blue Frame sem er geggjað flottur sportlitur, Track Red sem er sportlegur rauður Cosmo blue sem er dökkblár. Þú getur síðan valið um álfelgur sem þér finnst fara best við þinn lit, 15, 16 eða 17 tommu.
Helstu tölur:
Verð frá: 3.540.000 kr. (EX reynlusakstursbíll 4.440.000 kr.)
Vél: 1.400rms
Hestöfl: 140 við 6.000 sn.
Newtonmetrar: 242 við 1.500-3.200sn.
0-100 k á klst: 10,4 sek.
Hámarkshraði: 205 km
CO2: 129 g/km
Eigin þyngd: 1.412kg
L/B/H 4310/1800/1447 mm
Eyðsla bl ak: 5,7 l/100 km
?