Nýr Hyundai Bayon 2021 mættur
- Lítill Hyundai Bayon „sportjeppi“ án fjórhjóladrifs frumsýndur og býður upp á nóg af hagkvæmni, skörpu útliti, háþróaðri tækni og er með milda blendingsdrifrás
Sportjeppar vinna stöðugt á í sölu og þess vegna er Hyundai að styrkja framboðið sitt með nýjum Bayon, litlum „crossover“, sem er áskorandi Renault Captur, Ford Puma og Peugeot 2008.
Í raun sýna þessir keppinautar hversu fjölmennur þessi geiri markaðarins er þegar, en Hyundai Bayon notar nóg af nútímatækni, með sterka tengimöguleika, mildar-tvinnvélar og verndandi öryggistækni til að halda bílnum samkeppnishæfum. Honum er „pakkað“ inn í skarpt útlit sem tekur hönnunarmál Hyundai á enn nýjan stall.
En við erum ekki að tala um „jeppa“ í þeim skilningi hér, bara að því marki að útlit og hönnun eru með jeppayfirbragði, en aukin veghæð og mörg atriði styðja „jeppatilfinninguna“ þótt ekkert sé fjórhjóladrifið.
Ljósin undirstrika hönnunina
Líkt og á stærri Tucson sportjeppa vörumerkisins er lýsing lykillinn að útlitinu hér, með grönn dagljós fyrir ofan stærri, hallandi aðaleiningarnar. Skörp brot á hliðum bílsins minna líka á stærri bróður hans, en örvarlaga afturljósin – tengd með rönd í fullri breidd – vísa til i20 smábílsins.
Aðeins 4,180 mm að lengd og 1,775 mm á breidd eru mál Bayon ekki stór, með minna fótspor en helstu keppinautar þess sem nefndir eru hér að ofan og situr fyrir neðan eigin Kona sportjeppa fyrirtækisins þegar kemur að stærð.
Bayon er því nær „súpermini“ í stærð þar sem hann er sömu breidd þó hann sé 140 mm lengri en i20 bíllinn frá kóreska vörumerkinu. Þeir segjast hafa hámarkað umbúðir á nýja krossover-bílnum og losað um 411 lítra af farangursrými og nóg af fótaplássi að innan, með 2.580 mm hjólhaf. Plássið eykst í 1.205 lítra með því að leggja aftursætin niður.
Verandi 1.490 mm á hæð ætti bíllinn að bjóða upp á góða yfirsýn, en Hyundai heldur því fram að með allt að 183 mm veghæð frá jörðu þegar bíllinn er búinn 17 tommu álfelgum (16 tommu álfelgur eða 15 tommu stálfelgur munu einnig verið fáanlegur eftir búnaðarstigi)- eða eins og Hyundai segir: Alvöru sportjeppi.
„Með skörpu útliti og samþættingu lykilhönnunarþátta sportjeppa frá Hyundai, styrkir Bayon hönnunarstefnu sportjeppa Hyundai,“ sagði sstjórnandi hönnunar hjá Hyundai, Luc Donckerwolke.
Nýr Hyundai Bayon: tækni og tenging
Bayon erfir tæknina frá i20-bílnum, með tvær mismunandi uppsetningar upplýsinga- og margmiðlunarskjá. Sá fyrri er átta tommu snertiskjár sem er með Android Auto og þráðlausan Apple CarPlay (sá fyrsti í þessum stærðarflokki, samkvæmt Hyundai), sem notar snjallsímann þinn til að fá leiðsögnina. Hinn kosturinn er 10,25 tommu snertiskjákerfi með innbyggðu leiðsögukerfi, með svipaða tækjatengingu.
10,25 tommu stafrænt mælaborð er til staðar, en uppfært Bose hljómkerfi og þráðlaus hleðsla verður einnig á boðstólum, allt eftir stigi búnaðar.
Allar gerðir fá þrjú USB tengi – tvö að framan og eitt að aftan, þannig að farþegar geta haldið tækjum sínum hlöðnum óháð tækinu sem notað er í tengingarskyni.
Hyundai bætir tengibúnaðinum með nýjustu þjónustu sinni af Bluelink. Þetta þýðir að Bayon eigendur geta búið til sína eigin notendaprófíla, auk þess að samstilla Google eða Apple dagatal símans við bílinn – ef dagbókarfærsla hefur heimilisfang tengt er hægt að flytja þessar upplýsingar inn í gagnaflutning bílsins.
Einnig er boðið upp á tengda leið, sem notar skýjatengda leiðsögn til að fá nánari leiðbeiningar, en upplýsingar um bílastæði munu veita þér verð og framboð á bílastæðum í nágrenninu, þar með talið bílastæði á götum.
Nýr Hyundai Bayon: öryggi
Tækni Bayon nær til þess verndarstigs sem í boði er. Þessi sportjeppi verður líklega notaður af fjölskyldum og því eru til nóg af SmartSense virku öryggiskerfum Hyundai til að vernda farþega. Fullar tæknilýsingar hafa ekki enn verið staðfestar, en þegar kemur að öryggiskerfum segir Hyundai að „mörg þeirra séu þegar innifalin í staðalbúnaðinum“.
Þetta felur í sér aðstoð við akstur í akreinum, hálfsjálfstæð akreinaraðstoð, uppgötvun til að forðast árekstur við gangandi og hjólandi vegfarenda auk sjálfstæðrar neyðarhemlunar, háuljósaaðstoðar, viðvörunar ökumanns, blindblettaviðvörunar og viðvörunar um þverumferð að aftan.
Einnig er viðvörun farþega í aftursæti sem greinir hreyfingu í aftursætum og lætur bílstjórann vita áður en hann yfirgefur bílinn, en Bayon mun einnig vara þig við að bílar fari á undan þér í biðröð ef þú tekur ekki eftir því .
Nýr Hyundai Bayon: vélar, afköst og CO2
Það kemur ekki á óvart að Bayon deilir miklu af mótorlínu sinni með i20 supermini vörumerkisins, með 1,0 lítra þriggja strokka túrbóvél sem er styrkt með 48 volta mildblendingstækni.
Hins vegar, til viðbótar við 99 hestafla aflrás sem er fáanleg í i20 línunni, er Bayon einnig með 118 hestafla afbrigði. Bíllinn verður boðinn með sex gíra iMT greindri handskiptingu Hyundai og sjö gíra tvískiptri sjálfskiptingu.
Fyrri uppsetningin fjarlægir beina tengingu milli fótstigs kúplingar og kúplingsdisksins sem situr milli vélarinnar og gírkassans og kemur í staðinn fyrir rafræna skynjara og virkjun til að tengja og aftengja kúplinguna.
Reynsla þeirra hjá Auto Express af þessu kerfi í i20 er jákvæð, þar sem tæknin bregst við eins og venjuleg handskipting, en kippir vélinni út á snjallan og kveikir á henni þegar þú snertir bremsuna eða inngjöfina.
Það eru þrjár mismunandi akstursstillingar í boði – Eco, Normal og Sport – þar sem sú síðarnefnda er með samsvarandi aðgerð fyrir iMT gírkassann.
Báðar vélarnar bjóða upp á sama tog, eða 172 Nm. 99 hestafla 1.0 T-GDi gerðin kemur bílnum frá 0-100 km/klst á 10,7 sekúndum með sex gíra iMT gírkassanum, en sjö gíra DCT-skiptingin tekur sekúndu lengri tíma til að ná þessu.
118 hestafla gerðin er þrjá tíundu úr sekúndu lengur en öflugu systkinin að ná 0-100 km/klst sinnum, bæði í handskiptri og sjálfskiptri stillingu.
Enn liggja ekki fyrir hvenær þessi nýi knái bíll frá Hyundai muni koma á markað í Evrópu og á til hvaða landa, en við göngum út frá því að það verði ekki innan langs tíma.
(byggt á vefsíðu Hyundai og frétt á Auto Express – myndi Hyundai)
Umræður um þessa grein