Nýr Fiat Panda jepplingur settur á markað árið 2023 – líka rafdrifinn
- Fiat er að skipuleggja röð bíla byggða á Centoventi hugmyndinni – þar á meðal nýr lítill „Panda jeppi“
Fiat er að skipuleggja sókn á sviði rafbíla á viðráðanlegu verði. Bílarnir koma á markað á næstu fimm árum – og ítalska vörumerkið mun veita 500-bílnum sess á markaði og úrvali hagnýtra farartækja sem byggjast á Centoventi hugmyndinni sem yrðu lykilstoðir fyrir vöxt Fiat innan Stellantis.
Forstjóri Fiat, Olivier Francois, sagði nýlega við Auto Express að þessi stefna myndi breyta hugmyndafræði fyrirtækisins.
Nú mun 500-bíllinn leggja línurnar innan vörumerkisins hvað stíl og útlit varðar, en væntanlegar Centoventi-gerðir verða endurhannaðar með hagkvæmni að leiðarljósi.
Þessar nýju grunngerðir verða einnig á hagkvæmu verði, og rétt eins og á níunda áratugnum verður áhersla lögð á að halda framleiðslukostnaði lágum og Panda mun auðvitað halda karaktereinkennum sínum sem hinn harðgerði bíll. Hingað til hefur Auto Express skilið það sem svo að það verði „Panda supermini“ og nýr „Panda jeppi“ (sýndur hér að ofan) – en fleiri gerðir eru væntanlegar.
Auto Express spurði Francois beint hvort nýja Fiat línan myndi byggja á tveimur meginstoðum; 500 bílnum og þeim ramma sem Centoventi-hugmyndin setur fram – og hann svaraði: „Nákvæmlega, það er rétt.” Hann fór ekki í nein smáatriði en hvað nafngift snertir sagði hann: „Það sem er víst er að nú hef ég möguleika á að koma með nýtt nafn, eða að nota eitthvert sagnfræðilegt nafn fortíðar.
Ég hallast meira að því síðara,“ sagði Francois.
„Þannig að ég bý til bíl í B-hluta [supermini], og verður það þá nýr Punto? Verður þetta Ofurpanda? Ég veit ekki. Við munum komast að því. Það sem er mjög mikilvægt, er að við fyrstu sýn – jafnvel án merkimiða eða vörumerkis – muntu sjá að þetta er Fiat.“
„Panda supermini“ verður harðgerður, kassalaga borgarbíll – og það er það næsta sem Fiat setur á markað til að fylgja núverandi Panda eftir. Þá verða að minnsta kosti ein, (en líklega tvær), stækkaðar gerðir sem munu líklega nota sama Stellantis CMP grunn og nýja systurmerki Fiat, Peugeot, notar undir 208 og 308.
„Punto“ sem Francois nefnir hér að ofan gæti verið kassalaga supermini, en nafnið gæti líka átt við „Panda-jeppann okkar“ á myndinni hér efst, sem varð framlenging á upprunalegu Centoventi hugmyndinni. Þetta farartæki mun gefa Fiat hagnýtari grunn fyrir næsta 500X og í raun koma í staðinn fyrir 500L MPV, sem ekki hefur náð hylli kaupenda.
Fiat hefur þegar teiknað lítinn jeppa – sem enn hefur ekki verið tilgreindur – fyrir Tichy verksmiðju sína í Póllandi (nú framleiðslustaður eldri 500 og Lancia Ypsilon) frá 2023. Það er árið sem Francois býst við að nýju bílarnir komi á markað.
Gert er ráð fyrir að gerð, sem ætti að vera forsýnd á þessu ári, verði smíðuð ásamt smájeppa Alfa, auk minni bíls frá Jeep – og allir þrír bílarnir myndu nota CMP og e-CMP grunna fyrirtækisins til að bjóða val um bensín eða rafdrif.
Francois, þvert á vangaveltur, gaf til kynna að það væri pláss í röðinni fyrir tvo litla jeppa. „Ef þú horfir á VW, þá er hann með T-Cross og T-Roc, sem eru báðir jeppar en einn er stærri og hinn minni.
„Og ofan á það eru þeir með Taigo [coupé-jeppann],“ sagði hann. „Vegna þess að við erum ekki svo rík, ætlum við ekki að setja á markað fjórar eða fimm útgáfur. En við höfum tækifæri til að segja: „Ef þú vilt eitthvað með aðeins meira coupé-útliti, meira ávalt, þá er ég með frábærar fréttir: ég hef hönnunarinnblástur frá 500“.”
„En ef þú vilt fá pláss fyrir peninginn – það er kannski annar mikilvægur þáttur fyrir [litlu] B-jeppana – ef þú vilt virkilega ferkantaða kassa, harðgerðan og rúmgóðan, þá hef ég innblásturinn sem er Panda. Og hugmynd mín er að halda mig við þetta, í bili.“
„Hugmyndin er að einbeita okkur að bílum sem eru á milli 3,7 metrar og 4,3 metrar að lengd,“ sagði hann. „A-hluti, B-hluti, B-jeppi stuttur, B-jeppi langur. Það er þar sem við viljum spila.”
Víðtækari stefna Fiat og framtíðin með Stellantis
Undanfarinn áratug hefur Fiat stundum átt í erfiðleikum með að staðsetja restina af línunni við hlið 500 bílanna – ekki síst vegna þess að þróun nýrra útgáfa af bílum eins og Punto og Tipo var óheyrilega dýr.
Nú, þar sem Fiat er hluti af Stellantis og getur nýtt sér samrunann, ásamt tilbúnum grunnum og vélum, segir Francois að þróunarkostnaður hans á helstu litlum bílunum gæti lækkað um allt að þrjá fjórðu í sumum tilfellum.
„Ég á systkini núna – Peugeot, Opel, Citroen, DS, jafnvel Lancia, sem eru í þeim bransa að búa til litla og netta evrópska bíla,“ sagði Francois. „Þannig að við þurfum öll meira og minna sama hlutinn, sömu tæknina. Auðvitað verða bílarnir í grundvallaratriðum ólíkir, en undirvögnunum má deila.“ Hins vegar virðist líklegt að Fiat muni reyna að koma með að minnsta kosti eitt afbrigði til viðbótar af nýjasta 500-grunninum – sem var þróaður innahúss fyrir sameiningu Stellantis.
(byggt á grein á vef Auto Express)
Umræður um þessa grein