Nýr Dacia Jogger árgerð 2022 frumsýndur 3. september
Nýi sjö sæta fjölnotabíllinn frá Dacia mun heita Jogger og verður frumsýndur í München á IAA Mobility sýningunni 2021
Hinn nýi Dacia Jogger, sem er arftaki hins rúmgóða sjö sæta fjölnotabíls frá rúmenska vörumerkinu verður frumsýndur á bílasýningunni í München í september í næstu viku.
Samkvæmt þessum myndum eru framljós bílsins eru greinilega í samræmi við nýja glæsilegri hönnun Dacia en afturljósin minna á Dacia Bigster hugmyndabílinn.
Þegar Dacia skipti um merki er nafnið stafað með stórum stöfum þvert á afturhlerann.
Dacia hefur haldið sig til hlés hér á landi varðandi sölu á fleiri bílum en Duster til þessa, en hver veit hvað þeir gera þegar þessi bíll bætist í safnið.
Þetta er bíll sem er ekki ósvipaður bílum eins og Citroen Berlingo, og hvernig hliðarmyndin sýnir bílinn þá gæti hann verið svolítið „sportjeppalegur“ – enda segir Dacia um bílinn að hann „kalli fram útivistarandann“.
Forstjóri Dacia, Denis Le Vot, hefur þegar staðfest að nýi bíllinn muni nota CMF-B grunn vörumerkisins, sem er líka notaður fyrir Sandero og mun verða grunninn að nýjum Dacia-gerðum í framtíðinni.
Fleiri bílar á leiðinni
Ólíklegt er að Jogger verði eini sjö sæta bíll Dacia í þessum stærðarflokki. Fyrirtækið mun setja á markað 4,6 metra langan jeppa síðla árs 2024 eða snemma árs 2025 og le Vot sagði að bíllinn, sem sýndur var sem Bigster hugmyndabíllinn, muni hafa „að minnsta kosti fimm sæti“.
Umræður um þessa grein