Nýr Citroen C3 Aircross árgerð 2021 kemur með uppfært útlit og viðbótartækni
- Citroen C3 Aircross fær nýtt útlit, nýtt upplýsinga- og afþreyingarkerfi og fjölhæfari geymsluvalkosti í innanrými
Vefir Auto Express og Autocar fræða okkur á því að Citroen C3 Aircross, lipri „crossover“-bíllinn hefur fengið andlitslyftingu í 2021-árgerð. Það er fyrsta stóra endurskoðunin hjá Citroen á þessum keppinaut Nissan Juke og Opel Crossland frá upphafinu árið 2017. Breytingarnar kynna nýtt útlit, auk innréttinga sem bæta hagkvæmni og nýtingu innanrýmis og búið er að bæta við nýrri tækni.
Breytingar í hönnun eru mest áberandi að framan, með endurskoðaðri neðri svuntu sem er með stærra loftinntak og meira áberandi útlit. Sérstök aðskilin aðalljós C3 Aircross eru enn til staðar, en neðri ljósin breytast úr ávölum ferningum gömlu gerðarinnar í mjórri rétthyrndar einingar sem tengjast nýju grilli að framan.
Breytingar annars staðar eru ekki eins marktækar en úrval í litum bílsins hefur aukist með sjö nýjum litbrigðum og kaupendur velja nú úr alls 70 andstæðum lita á yfirbyggingu og þaki.
Litapakkar C3 Aircross eru þó áfram til staðar. Þetta bætir svolítið af andstæðum lit við neðri hlífðarplötuna að framan, spegla og við litlu gluggana aftast. Ný gljáandi svört hönnun á álfelgum er einnig, fáanleg í 16 og 17 tommu stærðum.
Að innan er grunnhönnun og útlit mælaborðsins áfram en að sögn Auto Express hefur Citroen kynnt nýja valkosti með þremur „umhverfi“ fyrir kaupendur að velja úr. Grunngerð bílins er með sæti með gráu tauáklæði með mjúku gráu plastyfirborði á mælaborði, en kerfi sem kallast „Metropolitan Graphite“ kynnir manngert „grafít“-leðuráklæði og grátt tauáklæði með rönd á efri hluta sætisbaks og rönd á mælaborði í gráu.
Best búna gerðin býður kaupendum upp á val á alvöru leðuráklæði með „Hype Grey“ umhverfi og sameina grágrænt leður á sætunum og mælaborði með grafít manngerðu leðri.
Bæði Metropolitan Graphite og Hype Gray kerfin eru nú fáanleg með Advanced Comfort sætunum sem eru einnig á stærri C5 Aircross.
Samkvæmt upplýsingum frá Benný Ósk Harðardóttur, sölustjóra Citreon á Íslandi hjá Brimborg verður bíllinn fáanlegur hér á landi í júlí næstkomandi, en engar upplýsingar liggja fyrir um verð enn þá.
(fréttir á vef Auto Express og Autocar – myndir Citroen)
Umræður um þessa grein