- Coupé-systkini BMW X1 algjörlega endurhannað og mun bjóða upp á 300 hestöfl plús bensín- og rafbílaútgáfur. Stórt nýtt grill mun lýsa eins og í BMW i7
Önnur kynslóð BMW X2 er að búa sig undir yfirvofandi afhjúpun, með sýnishornamyndum sem staðfesta að hann muni taka upp nýja þaklínu og mun stærra grill sem hluta af heildarhönnun sem miðar að því að staðsetja hann sem „baby“ X6 segir vefur Autocar.
Bíllinn hefur þegar sést á kynningarmyndbandi sem Domagoj Dukec hönnunarstjóri BMW hefur sent frá sér fyrir opinberun á næstu vikum, mun hinn nýi X2 skipta út upphækkuðum hlaðbaks prófíl núverandi bíls fyrir meiri coupé-ímynd eins og stærri BMW X4 og BMW X6 systkini hans hafa þegar gert.
X2 mun nota kunnuglegar vélar, þar á meðal þriggja og fjögurra strokka bensín, og fjögurra strokka dísilvél.
Einnig er sýnilegt nýtt breiðara grill, sem mun koma X2 í takt við nýrri félaga sína í sportjeppalínu BMW – með upplýstri umgjörð eins og á nýja BMW i7 – ásamt X1-laga framljósum með sérsniðnu LED ljósamerki, eins og sjá má á myndinni efst.
Endurhönnunin mun festa í sessi stöðu X2 sem útlitslega með sömu áherslu og systkinabíllinn BMW X1, líkt og X4 gerir fyrir X3 og X6 fyrir X5. Og eins og þessir stærri coupé-sportjeppar, er búist við því að hann sé tæknilega eins og systkini hans.
Það þýðir að hann ætti að vera boðinn með úrvali af bensín-, dísil- og tvinnaflrásum sem eru á bilinu 168 hestöfl til 322 hestafla – og það hefur þegar verið staðfest að þessi jepplingur verður fáanlegur í fyrsta skipti með hreinni raforku.
Nýi BMW iX2 mun keppa við Volkswagen ID 5 og Volvo C40 með 308 hestafla tveggja mótora fyrirkomulagi iX1, sem mun ná honum frá 0-100 lm/klst á um 5,6 sekúndum og sigla á 3,4 mpkWh í 418 km vegalengd á 64,7kWh rafhlöðu. Hleðsluhraði mun ná hámarki í 130kW.
BMW X2 M35i er einnig að koma aftur, hann hefur sést í prófunum í Nürburgring nýlega. Hann er aðgreindur frá kraftminni systkinum sínum með útblæstri með fjórum púströrum og mun fara á eftir Mercedes-AMG GLC 43 með 296 hestafla túrbó fjögurra strokka vél á hraða sem fer 0-100 km/klst á 5,4 sekúndum.
Gert er ráð fyrir að öll afbrigði verði að mestu eins og X1 að innan, þar sem snúningsstýrihnappur núverandi bíls fyrir upplýsinga- og afþreyingarstýringu er ekki lengur fyrir hendi fyrir snerti-stýringu, fyrirkomulag sem miðast við 10,7 tommu afþreyingarskjá og 10,25 tommu stafrænan ökumannsskjá.
Aðalmunurinn verður smávægilegur halli á höfuðrými og farangursrými, vagna áhrifa frá hallandi þaki.
Staðfest af Oliver Zipse, stjórnarformanni BMW, á árlegri ráðstefnu þýska bílaframleiðandans í mars, verða bílarnir settir á markað í lok árs 2023, en von er á fyrstu afhendingum í Bretlandi í byrjun næsta árs.
Nýr X2 mun verða örlítið dýrari en X1, sem er nú fáanlegur frá 34.365 pundum (IKR 5.736.200) með bensíni og 53.295 pundum (ISK 8.896.000) í rafknúnum iX1 búningi.
(byggt á grein á vef Autocar)
Umræður um þessa grein