Ný kynslóð af VDL Citea rafknúnum strætisvögnum
- Sigurður Steinsson hjá Vélrás segir að ný kynslóð VDL strætisvagna sé bylting í fólksflutningum
Árið 2021 munu VDL Bus & Coach verksmiðjrnar í Hollandi kynna nýja kynslóð af Citea strætisvögnum. Við hönnun þessara vagna var sköpuð ný framtíðarsýn við framleiðslu á strætisvögnum. Þar verður eingöngu notuð rafknúin driflína til að minnka útblástur og mengun frá almenningssamgöngum framtíðarinnar.
Með nýrri hönnun á yfirbyggingu vagnanna tekst VDL að gera þessa bíla um 15% léttari en eldri útgáfur.
Til að ná því markmiði var öll vinna við hönnun og undirbúning miðuð við að létta vagnana og minnka um leið vindmótstöðu og allt viðnám. Stærsta breytingin er að hönnuð var ný útgafa af hliðum í vagananna.
Hliðin er smíðuð í einu lagi og með því er stórlega bætt við einangrun auk þess verða engin samskeyti sem gerir það að verkum að minni þörf er á hitagjafa, sem stuðlar um leið að betri orkunýtingu. Með þessum nýungum stefnir VDL að því að minnka orkunotkun þessara vagna um allt að 30%.
Við framleiðslu á þessum vögnum byggir VDL á mikilli reynslu af hönnun og framleiðslu á rafmagnsvögnum. Það eru 25 ár síðan að VDL fór að horfa á rafmagn sem framtíðarorkugjafa í almennings samgöngum, í framhaldi af því kom fyrsti rafknúni Citea strætisvagninn á markað árið 2013.
Vagnarnir munu geta flutt fleiri farþega en eldri gerðir strætisvagna. Sem dæmi má nefna að 12,2 metra strætisvagn af þessari gerð sem ein algengasta lengd á strætisvögnum mun geta rúmað allt að 110 farþega.
Sambærilegir vagnar í dag mega flytja mest um 90 farþega. Með þessu móti næst betri nýting á hverjum vagni og flutningsmagnið sem hver vagn getur annað verður meira en þekkist núna, með þessu minnkar þörf á aukavögnum yfir álagstíma og umferð strætisvagna minnkar að sama skapi.
Önnur nýung sem VDL boðar í þessari gerð strætisvagna er að rafhlöður bílanna verða staðsettar undir gólfi vagnanna.
Með því móti verður þyngdarpunktur vagnanna mjög neðarlega og verða þeir mun öruggari og stöðugri í akstri en eldri útgáfur.
Þessir vagnar munu verða framleiddir í fjórum lengdum, frá 12,2 m til 18 m. Með þessum útfærslum henta þeir sem flestum viðskiptavinum og nýtast við hinar ýmsu aðstæður.
Þessir bílar í 13,5 m. útfærslu munu geta flutt álíka fjölda farþega og margar geriðr af 3 öxla 18 m stætisvögnum gera í dag.
Einnig verða í boði nokkrar útgáfur af á farþegrými t.d. mismunandi fjölda farþega í sætum eða stæðum.
Ánægður ökumaður er alltaf ein besta auglýsing sem nokkur bílaframleiðandi getur státað af.
Til að ná þessum árangri hefur VDL sett sig í samband við fjölda ökumanna til að fá þeirra hugmyndir og athugasemdir, hvað má laga, og þá hvernig.
Einnig hefur verið verið leitað til annara fagaðila til að tryggja sem bestan árangur við hönnun. Má þar nefna atriði sem skipta miklu máli á öllum vinnustöðum sem þessum, einkum var horft á vinnuvistfræði og líkamsbeitingu
Við hönnun á farartækjum í farþegaflutningum, skiptir miklu máli að upplifun farþeganna sé sem best. Eitt af því sem farþegar taka alltaf eftir er hávaði sem oft fylgir því að ferðast í bíl.
Þarna hefur VDL lagt mikla áherslu á að draga úr hávaðamengun eins og kostur er. Má þar nefna nýja hönnun á hliðum vagnanna, bogadregnar línur að framan, myndavélar í stað útispegla og hvöss horn að aftan.
Til að ná þessum frábæra árangri við að mnnka vindmótstöðu vaganna var notast við vindgöng við mælingar og prófanir.
Til að ná sem bestum árangri við hönnun á þessum vögnum, var mikil áhersla lögð á prófanir við raunverulegar aðstæður.
Þar var mesta áherslan lögð á prófa rafhlöður og rafbúnað bílanna við mismunandi hitastig. Var bæði verið á köldum og heitum svæðum til að fylgjast með virkni og afköstum þessa búnaðar sem best.
Niðurstaða þessara prófanna er að hin nýja kynslóð Citea noti um 20 – 25% minna af orku en eldri gerðir, og í framhaldinu sé þá drægni vagnanna orðin um 20% meiri en í eldri útgáfum.
Niðurstaðan er sú að drægni þessara bíla án helðslu getur orðið á bilinu 500 – 600 km. Fari lofthiti niður undir – 15°, getur drægnin farið niður í 250 km.
Með þessu ættu þessir bílar að gera sinnt daglegum akstri á flestum strætisvagna leiðum innanbæjar án þess að þurfa hleðslu.
Í strætisvögnum nútímans er verið að flytja farþega í ýmiskonar erindagjörðum. Mikilvægt er að farþegum líði vel meðan á ferðinni stendur.
Þess vegna hefur VDL hannað þessa vagna með það í huga og um leið lagt mikla áherslu á gott aðgengi, auðveld þrif á vögnunum og allt efnisval miðast við að möguleikar til skemmdarverka eins litlir og kostur er.
Allir vita að lýsing hefur mikið með alla upplifun fólks að gera. Þegar VDL hannaði lýsingu í þennan vagn var lagt upp með að skapa þægilega, en um leið góða lýsingu.
Notast er við óbeina lýsingu niður með hliðunum, og við loft. Græn ljós birtast við hurðir þegar opnað er, en rauð þegar hurðum er lokað. Eins er hægt að hafa mjög skæra og góða birtu ef þurfa þykir.
Hreinlæit og almenn hollusta er orðin stór þáttur í lífi okkar allra. VDL hefur með hönnun á innréttingu bílsins lagt sitt af mörkum til að einfalda öll þrif inn í bílnum.
Auðvelt á að vera að hreinsa gólf og hliðar, eins eru sæti klædd með efni sem á að hrinda frá sér óhreinindum.
Til viðbótar hefur loftræstikerfi bílanna verið stórbætt til að auka loftgæði og minnka hættu á að óhreinindi berist í farþegarýmið.
Í dag eru um 800 rafknúnir VDL strætisvagnar á ferðinni í 55 borgum um alla Evrópu. Um 500 af þessum bílum eru í rekstri í Hollandi. Samtals hefur rafknúnum strætisvögnum frá VDL verið ekið um 100 milljónir kílómetra síðan 2013.
VDL hyggst frumsýna þennan framtíðarstrætisvagn í nóvember n.k.
Vélrás er umboðsaðili VDL á Íslandi og hefur selt og þjónustað VDL hópferðabíla og strætisvagna um árabíl.
Sem stendur eru 30 strætisvagnar af eldri gerðum Citea vagna í notkun hér á landi auk um 100 hópferðabíla frá VDL.
Umræður um þessa grein