Núna færðu plássið
Þegar að bílaframleiðandi eins og Volkswagen ákveður að stækka einn vinsælasta jepplinginn sinn, er ekki hægt annað en að fá að prófa.
Myndarlegt skott
Það hljómar kannski furðulega að byrja á skottinu í umfjöllun sem þessari en þar er Tiguan Allspace á heimavelli. Allspace gæti einmitt verið þýtt sem Bara Rými og á það vel við. Þriðja sætaröðin er geymd í skotti Tiguans og þegar hún liggur niðri er auðvelt og þægilegt að hlaða farangri og frakt ofaná hana. Undir henni er varadekkið ásamt sérstöku hólfi fyrir hlífina yfir skottið. Afturhurðirnar eru stórar, opnast vel og hjálpar það enn betur í umgengni um bílinn. Þær eru líka lágar og útsýni út um gluggana mikið, sem er einstaklega gott fyrir börn.
Endalaust geymslupláss
Um allan bílinn er að finna lítil hólf sérstaklega hönnuð til að geyma hluti. Undir bílstjórasætunum eru skúffur, í lofti á milli bílstjóra og farþega er hólf fyrir sólgleraugu, fyrir aftan það hólf er annað fyrir sólgeraugu þeirra sem eru aftur í, ofan á mælaborðinu er einnig geymsluhólf og við vinstra hné bílstjórans er líka hólf (hvað eru mörg hólf í því?). Hanskahólfið er svo af stærri gerðinni og er hægt að láta loftkælinguna kæla það. Ömmur og afar sem fjárfesta í Tiguan Allspace geta því unnið sér inn mikla punkta hjá barnabörnum með því að bjóða uppá kaldan Svala.
Klassísk hönnun sem heillar
Útlit Tiguan Allspace er fágað og heillandi. Bíllinn sem við vorum með í prófunum tók sig sérstakelga vel út í frosnu landslaginu. Að utan eru fáar en flottar línur sem allar tengjast vel saman. Ljósahönnunin er mjög flott og LED ljósin að framan heilluðu mig mikið. Þar hjálpar til allt krómið sem á framendanum er og nær það að lýsa upp grillið og gefa því sterkan svip.
Að innan er efnisval til fyrirmyndar, gott umhverfi, allt auðskiljanlegt og á sínum stað. Hér er ekki að finna nein hörð yfirborð og sértaklega ánægulegt er að sjá ekkert háglansandi svart yfirborð sem virðist framleiða fingraför. Stjórntæki fyrir sætishita og miðstöð er svo hægt að kveikja á í leðurhönskum og stýrishitarinn kemur með sætishita bílstjóra á sama tíma.
Þægilegur akstursbíll
Það er þægilegt að aka Tiguan Allspace. Vélin sem við höfðum til prufu var knúin áfram af díselolíu og gaf hún frá sér mikið tog og skemmtilegan kraft. Hæst ber þó að nefna tvíkúplings sjálfskiptinguna en hún var hrein unun að eiga við. Allar gírskiptingar frá henni voru mjúkar og þægilegar. Hægt er að taka yfir sjálfskiptimöguleikann og skipta sjálfur um gír en það truflar bara akstursánægjuna, svo hjá mér var hann í D. Fjórhjóladrifið skilaði líka sínu og á snæviþöktum vegum var litlum takka snúið í snjóstillingu og fannst þá ekki fyrir hálkunni. Sá takki skipar einmitt fjórhjóladrifinu fyrir um á hvernig vegum er verið að aka. Stillingarnar í boði eru fjórar: Snjór, venjuleg, möl og utanvegar. Ekki gafst mér tækifæri í frostinu þá daga sem ég var með Tiguan til að prófa þær allar nema snjóstillinguna. Hún virkaði gífurlega vel og fann maður breytingu á beitingu bílsins á aflinu til hjólanna.
Lokaorð
Það kom mér verulega á óvart hversu skemmtilegur Tiguan Allspace er. Góður í umgengni, þægilegur og ljúfur í akstri. Verðið á honum skemmir ekki fyrir og búnaðurinn sem þú færð með. Að hafa möguleikann á þriðju sætaröðinni er líka kostur, en stærra skott er þó helsti kosturinn. Ég get mælt með Tiguan Allspace. Takið hann í R-line útgáfu í Habanero Appelsínugulum eða Dark Bronze litunum. Passið svo bara að hafa hann á góðum vetrardekkjum því þú munt treysta honum til að fara mun meira en þú heldur.
Ef þér lýst á’ann, keyptann.